Margrét Rós Harðardóttir og garðrækt með Stasi
Margir sem leggja leið sína til Berlína hafa kynnst Berlínunum, en það eru íslenskir leiðsögumenn sem fara með Íslendinga í túra um borgina og sýna helstu sögustaði. Upphafsmanneskjan er myndlistarkonan og Vestmannaeyingurinn Margrét Rós Harðardóttir. Felix hitti Margréti Rós í Berlín og kynntist nýjasta áhugamáli hennar en Margrét er farin að rækta garð í miklum sælureit í Pankow í gömlu Austur Berlín ásamt fjölskyldu sinni. Á meðan þau sötruðu kaffið sagði Margrét af garðræktinni, nýja podkastinu og nágrönnunum sem hún hefur kynnst en þar kom Stasi sannarlega við sögu
Svo kíktum við á það sem hefur gerst á deginum 7. júní og Felix sagði hlustendum af heimsókn sinni til Tbilisi í Georgíu.
Fleiri þættir af Fram og til baka
- Ragnar Jónasson, lönd og leyndardómar3. október 2026
- Adda Baldurs knattspyrnuhetja26. september 2026
- Gunnar Tómas Kristófersson kvikmyndafræðingur19. september 2026
- Snjólaug Lúðvíksdóttir um bestu og verstu uppistöndin12. september 2026
- Bergur Ebbi og öld ímyndunaraflsins5. september 2026
- 10 ára afmæli Improv Ísland og glænýi dúettinn HAUSST29. ágúst 2026