Matti og Áslaug eru foreldrar Væb bræðra
Fimma dagsins var óvenjuleg því í fyrsta sinn var par í fimmunni. Þetta voru hjónin Áslaug Helga Hálfdánardóttir og Mattías V Baldursson (Matti Sax) en þau eru stödd í Basel í Sviss þessa dagana til að fylgja sonum sínum og Væb bræðrum Matthíasi og Hálfdáni í Eurovision. Hjónin sögðu okkur af fimm tónlistarstefnum sem hafa markað líf þeirra og talið barst víða, t.d um hljómsveitirnar Sveindóm og Klamidíu X og starfið í kirkjunni. Einnig sögðu þau hlustendum frá þrautagöngu og baráttu Matthíasar yngri við illvígan sjúkdóm sem dró hann næstum til dauða.
Fleiri þættir af Fram og til baka
- Ragnar Jónasson, lönd og leyndardómar3. október 2026
- Adda Baldurs knattspyrnuhetja26. september 2026
- Gunnar Tómas Kristófersson kvikmyndafræðingur19. september 2026
- Snjólaug Lúðvíksdóttir um bestu og verstu uppistöndin12. september 2026
- Bergur Ebbi og öld ímyndunaraflsins5. september 2026
- 10 ára afmæli Improv Ísland og glænýi dúettinn HAUSST29. ágúst 2026