Hannes Óli Ágústsson leikari

· Menning & listir

Hannes Óli Ágústsson hefur komið víða við í listinni og vakið athygli fyrir mikla hæfileika, bæði í gamanleik og drama. Hannes Óli kemur í Fimmu og segir af fimm lögum sem hafa sterk tilfinningatengsl við hann. Verður Ja Ja Ding Dong þar á meðal?
Í síðari hluta þáttarins verður Leifur Geir Hafsteinsson viðmælandi en hann stendur fyrir stóru verkefni með Vestmannaeyingum í hópnum Vinir og vandamenn en þar eru fjölskyldumeðlimir Oddgeirs Kristjánssonar og Ása í Bæ að syngja þekkt og óþekkt eyjalög. Leifur Geir segir okkur allt um verkefnið, tónleikana og plötuna Hve dátt er hér…, sem sameinar sjaldheyrðar perlur og nýtt efni úr ríkri tónlistarhefð Vestmannaeyja.

Fram og til baka

Úr hlaðvarpinu

Fram og til baka

RÚV

Allir þættir

Fleiri þættir af Fram og til baka