Finnbogi Pétursson myndlistarmaður

· Menning & listir

Finnbogi Pétursson var valinn myndlistarmaður ársins á dögunum og þótti sýning hans í Hveragerði, Skjálfti, skara fram úr. Í umsögn dómefndar sagði: "Finnbogi vann hugmyndina að verkinu með tengdaföður sínum, jarðskjálftafræðingnum Ragnari Stefánssyni, sem jafnan var kallaður skjálfti. Þeir hugðust vinna með jarðfræðilega virkni Hveragerðis, meðal annars með tæki sem Ragnar hafði þróað. Áður en hugmyndin að sýningunni var fullunnin lést Ragnar en til að heiðra minningu hans kom Finnbogi eldrauðu duftkeri fyrir í rýminu og vísar þannig í nærveru ástvinar."
Finnbogi kemur í fimmu og talar um fimm vörður í lífinu sem breyttu öllu.

Fram og til baka

Úr hlaðvarpinu

Fram og til baka

RÚV

Allir þættir

Fleiri þættir af Fram og til baka