Hreimur Örn smurði samlokur til að sjá stjörnurnar

· Menning & listir

Hreimur Örn Heimisson er einn vinsælasti tónlistarmaður þjóðarinnar og gleður enn með nýrri tónlist og spilamennsku um allt land. Hreimur gaf sér tíma til að kíkja í morgunkaffi í Fram og til baka og tala um fimm tónleika sem höfðu djúp áhrif á líf hans. Sagan berst úr Landeyjunum þar sem Sálin var í heimsókn um víðan völl og endar á tónleikum með Paramore í London.
Í síðari hluta þáttarins kemur Jakob E Jakobsson vert á Jómfrúnni í heimsókn en Sumardjazzinn dásamlegi er að fara í gang í dag og RÚV ætlar að fylgjast vel með í sumar.

Fram og til baka

Úr hlaðvarpinu

Fram og til baka

RÚV

Allir þættir

Fleiri þættir af Fram og til baka