Þjóðhátíðarlögin og grasasnarnir í Jackass

· Menning & listir

Í þessum þætti af Fram og til baka skoða Felix og Nanna hátíðir víða um land. Franskir dagar á Fáskrúðsfirði fagna 30 ára afmæli og í tilefni þess heyrðu þau í Alberti Eiríkssyni og ræddu hátíðina. Þau fengu til sín Bergsvein Arilíusson og fóru yfir árin með Pöpum sem koma fram á bæjarhátíðinni Hjarta Hafnarfjarðar um helgina.

Það styttist í þjóðhátíð í Vestmannaeyjum og í tilefni þess tóku umsjónarmenn snúning á þjóðhátíðarlögum. Þá kíkti til þeirra Margrét Júlía Ingimarsdóttir, eyjakona, sem hefur aldrei látið sig vanta í dalinn og ræddi meðal annars hvað gerir gott þjóðhátíðarlag. Að lokum fengu þau til sín blaðamanninn og menningarrýninn Magnús Jochum Pálsson sem fór með þeim yfir nýjustu og mögulega síðustu myndina í Jackass kvikmyndabálknum.

Fram og til baka

Úr hlaðvarpinu

Fram og til baka

RÚV

Allir þættir

Fleiri þættir af Fram og til baka