Ódysseifskviða og Bræðslan á Borgarfirði Eystri
Í þætti dagsins voru umsjónarmennirnir Felix og Nanna á sitt hvorum enda landsins. Nanna var á sínum stað í Efstaleitinu en Felix var staddur á Borgarfirði Eystri þar sem Bræðslan fer fram um helgina. Þangað fékk hann til sín góða gesti. Hann ræddi við Ásgeir Heiðar Áskelsson, skipuleggjanda Bræðslunnar og Jódísi Skúladóttur, fyrrverandi þingmann og formann Hinsegin hátíðarinnar á Austurlandi sem fer fram þessa dagana.
Þá komu ekki síður góðir gestir í hljóðverið í Efstaleitinu. Þangað fékk Nanna til sín Sigrúnu Mathiesen, kvikmyndagerðarkonu sem sagði frá upplifun sinni af setti á tökum á kvikmyndinni The Odyssey sem var að hluta til tekin upp hér á landi. Strákarnir í Múr kíktu við og töluðu um væntanlegt tónleikaferðalag en þeir eru einnig að troða upp á lokakvöldi hátíðarinnar Rokk í Reykjavík í kvöld. Að lokum slógu umsjónarmenn á þráðinn hjá tónlistarmanninum Ásgeiri sem var einmitt á leið austur þar sem hann ætlar að koma fram á Bræðslunni.
Fleiri þættir af Fram og til baka
- Ragnar Jónasson, lönd og leyndardómar3. október 2026
- Adda Baldurs knattspyrnuhetja26. september 2026
- Gunnar Tómas Kristófersson kvikmyndafræðingur19. september 2026
- Snjólaug Lúðvíksdóttir um bestu og verstu uppistöndin12. september 2026
- Bergur Ebbi og öld ímyndunaraflsins5. september 2026
- 10 ára afmæli Improv Ísland og glænýi dúettinn HAUSST29. ágúst 2026