Neistaflug, Innipúkinn og Unglingalandsmót UMFÍ
Verslunarmannahelgin og íslensk tónlist var í hávegum höfð hjá þeim Felix og Nönnu í þætti dagsins. Þau slógu á þráðinn hjá Maríu Bóel Guðmundsdóttur sem er stödd í Neskaupsstað þar sem Neistaflug fer fram um helgina. Þá fengu þau til sín þau Kolbrúnu Óskarsdóttur og Hrannar Mána Ólafsson, Kusk og Óvita, í hljóðver en þau ætla að koma fram á Innipúkanum í kvöld.
Þar verður líka Unnsteinn Manúel og félagar í Retro Stefson en umsjónarmenn þáttarins vöktu hann með símtali í morgunsárið og fengu að heyra af stemningunni í Vestmannaeyjum þar sem hljómsveitin spilaði í gær. Svo er líf og fjör á Unglingalandsmóti UMFÍ á Sauðarkróki en Felix og Nanna heyrðu í Auði Ingu Þorsteinsdóttur sem kom að skipulagningu mótsins.
Fleiri þættir af Fram og til baka
- Ragnar Jónasson, lönd og leyndardómar3. október 2026
- Adda Baldurs knattspyrnuhetja26. september 2026
- Gunnar Tómas Kristófersson kvikmyndafræðingur19. september 2026
- Snjólaug Lúðvíksdóttir um bestu og verstu uppistöndin12. september 2026
- Bergur Ebbi og öld ímyndunaraflsins5. september 2026
- 10 ára afmæli Improv Ísland og glænýi dúettinn HAUSST29. ágúst 2026