Hinsegin gleði, Leikur einn og Hvanneyrarhátíð
Hinsegin dagar ná hápunkti um helgina og settu sinn svip á lagavalið í þætti dagsins hjá Felix og Nönnu. Í tilefni hátíðarinnar fengu þau til sín tónlistarmanninn Torfa sem ætlar einmitt að koma fram á Pride balli í Gamla bíó í kvöld ásamt Páli Óskari, Álfgrími og fleiri góðum gestum. Þá leit uppistandarinn og fræðarinn Sóley Kristjánsdóttir einnig við og ræddi við þau um ferilinn og spennandi verkefni á döfinni.
Þá voru auðvitað fleiri hátíðir í gangi víða um land. Umsjónarmenn þáttarins hringdu vestur á Suðureyri í Elfar Loga Hannesson sem kemur að skipulagningu hátíðarinnar Act Alone sem fer fram um helgina. Þá slógu þau einnig á þráðinn hjá Ragnhildi Helgu Jónsdóttur sem sagði þeim frá Hvanneyrarhátíð sem fer fram um helgina.
Fleiri þættir af Fram og til baka
- Ragnar Jónasson, lönd og leyndardómar3. október 2026
- Adda Baldurs knattspyrnuhetja26. september 2026
- Gunnar Tómas Kristófersson kvikmyndafræðingur19. september 2026
- Snjólaug Lúðvíksdóttir um bestu og verstu uppistöndin12. september 2026
- Bergur Ebbi og öld ímyndunaraflsins5. september 2026
- 10 ára afmæli Improv Ísland og glænýi dúettinn HAUSST29. ágúst 2026