Gróður frá suðurhveli jarðar, stofugreni og vendingar á Nýja–Sjálandi.

· Menning, Samfélagið, Landið, Heilsa, Andleg málefni

Í þættinum er ferðast um suðurhöf í gegnum íslenskan garðagróður sem á heimkynni sín á suðurhveli jarðar – í Argentínu, Síle, Ástralíu og Nýja–Sjálandi. Sérstaklega er fjallað um apahrelli og sneplur. Þá er einnig rætt um stofuplöntuna stofugreni frá Norfolk-eyju sem er að segja má í tísku. Einnig er kafað ofan í nýlegar ákvarðanir Nýsjálendinga um að veita vissum náttúrufyrirbærum þar í landi réttindi til jafns við einstaklinga. Fjallað er um þau náttúrutengsl sem þær ákvarðanir endurspegla og hvaðan þau koma.

Fleiri þættir af Gull og grænir skógar