14. Gróður gerir meira en að þekja: Ilmur, angan, lykt, áferð og skógarbað

· Menning, Samfélagið, Landið, Heilsa, Andleg málefni

Gróður er gjarnan skoðaður út frá sjónrænum áherslum en í þessum þætti er helst dvalið við gróður sem ilmar, allt frá nýslegnu grasi til eplarósar, anganmöðru, geislasóps og balsamþins. Fjallað er um tengsl lyktar, minninga og upplifana. Þá er sérstök áhersla lögð á þá eiginleika gróðurs sem skógarbað hverfist um og áhrifin sem það kallar fram. Rætt er við viðmælendur sem hafa mikla reynslu af skógarbaði, útivist og lengri dvölum á grænum svæðum, þar sem snert er á gróðri og áferð hans könnuð.

Viðmælendur: Heimir B. Janusarson, Íris Lana Birgisdóttir, Gunnþóra Ólafsdóttir, Hannes Hafsteinsson og Steinar Björgvinsson.

Fleiri þættir af Gull og grænir skógar