Gullkastið á Kop.is - 211
Stjórnandi: Einar Matthías
Viðmælendur: Maggi, SSteinn og Katrín Ómarsdóttir
Það er sannarlega ekki á hverjum degi sem við fáum fyrrum leikmann Liverpool á gestalistann hjá okkur og þáttur vikunnar því sannkallaður viðhafnarþáttur. Katrín Ómarsdóttir gerði auðvitað gott betur en það enda var hún partur af fyrsta meistaraliði kvennaliðs Liverpool í sögunni og fékk tvær gullmedalínur á þremur árum í borginni. Við fórum í Vesturbæinn og fengum Katrínu til að segja okkur aðeins frá tíma sínum hjá Liverpool, lífinu í borginni ásamt því auðvitað að skoða stöðu bæði karla og kvennaliðsins í dag.
Fleiri þættir af Gullkastið
- Gullkastið - Hvaða Man Utd lið mætir á Anfield?19. nóvember 2026
- Gullkastið - Önnur lota að baki11. nóvember 2026
- Gullkastið - Atletico Arsenal2. nóvember 2026
- Gullkastið - Handbragð Iraola29. október 2026
- Gullkastið - Pennahittingur24. október 2026
- Gullkastið - Framfarir frá síðasta tímabili19. október 2026
