Gullkastið - Hvaða Man Utd lið mætir á Anfield?
Manchester United bíður okkar núna um helgina eftir snarpt landsleikjahlé og enn einu sinni eru þeir með nýjan stjóra í brúnni. Liverpool á Anfield er fyrsta verkefni Pochettino sem stjóri United og ljóst að Liverpool verður að fara bæta hræðilegan árangur sinn gegn þessu United liði. Síðustu þrír deildarleikir hafa verið vægast sagt afleitir gegn annars afleitu United liði. Anfield þarf líka að skila miklu fleiri stigum en hann hefur verið að gera.
Notuðum einnig landsleikjahlés þátt til að spá í hópnum hjá Liverpool út frá því hvaða leikmenn er líklegir til að kveðja á næstu misserum og þá hvar er svigrúm til að kaupa nýja menn í staðin. Jafnvel strax í janúar. Iraola er búinn að fá nokkra mánuði til að læra á hópinn sem hann er með og sjá hvar hægt er að bæta hann.
Ögurverk liðið er komið með nýja vörn og GB Hús Farmenn vikunnar eru týndir synir sem eru að koma til baka eftir langtímameiðsli.
Stjórnandi: Einar Matthías
Viðmælendur: Maggi og SSteinn
Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:
Verdi Travel - Minnum á Kop.is ferðina Palace leikinn 15. - 18.janúar.
GB Hús / Sólpalur.is - Bjóðum þessa fagmenn velkomna leik leiks.
Ögurverk ehf - Langbestu jarðvinnuverktakar landsins
Gull áfengislaus - Okkar Bjór
