Dr.Sigrún Þóra Sveinsdóttir sálfræðingur um hjartsláttarbreytileika (HRV) og áhrif hans á andlega seiglu, hugræna frammistöðu, viðbragðsflýti, vinnuþreytu og jákvæðar tilfinningar.

· Heilsa

Í þessum þætti fáum við til okkar Dr. Sigrúnu Þóru Sveinsdóttur, sálfræðing og sérfræðing í lífeðlisfræðilegri sálfræði, og förum djúpt í HRV (Heart Rate Variability) – eitt áhugaverðasta mælitæki sem við höfum í dag til að skilja taugakerfið, streitu, endurheimt og jafnvægi. Rannsóknir Sigrúnar Þóru hafa m.a. skoðað tengsl HRV við andlega þrautseigju og hugræna frammistöðu, og í þættinum tengjum við saman líkamann og hugann á skýran og hagnýtan hátt.
Við ræðum:
Hvað er HRV (heart rate variability) og hvað er það í raun að mæla
Af hverju HRV tengist ósjálfráða taugakerfinu (sympatískt/parasympatískt)
Hvað hefur áhrif á HRV 
Hvað HRV getur sagt okkur um stöðu líkamans og okkur - andlega og líkamlega
Hvað HRV getur mögulega gefið vísbendingar um til lengri tíma (seiglu, streituþol, hugræna frammistöðu)
Hvað gerist í fari okkar þegar HRV batnar
Tengsl hjarta og heila: boðleiðir, vagus-taugin og samspil tilfinninga/hugsunar og lífeðlislegra þátta
Áhrif jákvæðrar hugsunar, öryggistilfinningar og þakklætis á taugakerfið og þar með HRV
Hvernig við getum bætt HRV í daglegu lífi 
Öndunaræfing / HRV-biofeedback: hvernig hún virkar og af hverju hún getur hækkað HRV
Gengur þetta í báðar áttir? (hugsun → líkami og líkami → hugarástand)
Hvað er “gott” og “vont” HRV: af hverju það er persónubundið og skiptir máli að bera sig saman við sjálfan sig
Er til hámarks HRV: hvað “hæsta mögulega” þýðir (raunverulega jafnvægi og sveigjanleiki frekar en að elta eina tölu)
Algeng mistök í HRV-túlkun og hvernig best er að lesa trend yfir tíma (ekki einstaka mælingu)
Hvað er resonance öndun?
Hvað er resonance lampi - og hvaða tæki eða öpp geta hjálpað okkur
Ræðum líka tilfinningasmitun - smitun innra ástands í nærliggjandi umhverfi

✨💚 Heilsuherinn okkar – fyrirtæki sem taka þátt í þessu heilsuferðalagi með okkur. ✨ Við þökkum þeim kærlega fyrir að vera hluti af þessu ferðalagi – á leið til betri heilsu fyrir alla. 💚 ✨
🥛 Bíóbú – lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur. biobu.is
💧 Happy Hydrate – besti æfingafélaginn, með söltum og steinefnum sem styðja við endurheimt eftir æfingu. happyhydrate.is
🍞 Brauð&Co – ekta súrdeigsbrauð úr lífrænu korni, án gers og aukaefna – ekkert drasl og allt búið til á staðnum. braudogco.is
🌿 Greenfit – heilsumælingar og meðferðir eins og súrefnis- og rauðljósameðferð sem styðja fólk til betri heilsu. greenfit.is
🏡 Húsaskjól – umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist. husaskjol.is
🏋️ Hreyfing – í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta líkamsræktarstöð landsins enn eitt árið í röð samkvæmt Maskínu - nú fimm ár í röð. hreyfing.is
🛒 Nettó – heilsudeild Nettó ætlar sér að taka forystu í að vera með bestu heilsudeild landsins. netto.is

Fleiri þættir af Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms