Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms

heilsuhladvarp

Heilsa

Heilsa og forvarnir gegn sjúkdómum hafa lengi verið okkur hjartans mál. Þrátt fyrir að líftími fólks hafi lengst undanfarna áratugi, hefur fjöldi heilbrigðra æviára dregist saman. Við erum lengur veik með skertum lífsgæðum og lyfjanotkunin ein sú mesta í heiminum. Getur það talist eðlilegt að flestir séu sjúkir á einhvern hátt? Lítum í kringum okkur, þekkjum við einhverja fjölskyldu þar sem ekki eru einhver veikindi á ferðinni? Getur það verið eðlilegt að með hverju ári aukist fjöldi þeirra sem fær sykursýki, krabbamein, Alzheimers-sjúkdóm, Parkinsonsveiki og sjálfsofnæmissjúkdóma eins og Multiple Schlerosis, gigtarsjúkdóma, Chrons-sjúkdóm, skjaldkirtilssjúkdóma og aðra bólgusjúkdóma? Er eðlilegt að á hverju ári deyi mörg hundruð manns af völdum hjarta- og æðasjúkdóma? Og er eðlilegt að við tökum inn lyf fyrir milljarða til að halda niðri einkennum þessara sjúkdóma en ekki að takast á við orsakirnar og lækna þá? Þessir sjúkdómar sem við nefnum hér hafa verið kallaðir lífsstílssjúkdómar. Hvers vegna? Jú, vegna þess að þeir þekktust varla fyrr en á 20. öld og ef þeir þekktust þá var það í mun minni mæli en á okkar tímum. Þessi sjúkdómar fara nú fremstir í flokki sem orsakir dauðsfalla í heiminum en um 70 prósent dauðsfalla á heimsvísu stafa af þeim. Á Íslandi er hlutfallið um 90%. Hvernig getum við snúið þessari þróun við og stutt líkamann í að viðhalda heilbrigði ævina út? Það er ótrúlega góð tilfinning að vita að maður sjálfur getur haft áhrif á heilsu sína – að maður sé ekki bara eins og korktappi úti á rúmsjó sem hefur ekkert að segja um það hvert ferðinni er heitið. Að maður getur virkilega haft áhrif á það hvort maður veikist eða ekki. Við sækjumst flest eftir aukinni vellíðan, orku, heilbrigðu útliti og síðast en ekki síst að geta verið við góða heilsu með börnum okkar og barnabörnum eins lengi og kostur er. Þess vegna skiptir máli að huga að lífsstílnum. Í þáttunum ætlum við að bjóða upp á fjölbreyttar og fræðandi umræður um allt sem tengist heilsu og heilbrigði, kafa djúpt í heilsutengd málefni og heilbrigðiskerfið og spyrja gagnrýnna spurninga. Við fáum til okkar áhugaverða gesti og sérfræðinga úr heilsugeiranum, auk fólks sem hefur fetað óhefðbundnar leiðir til að takast á við veikindi og sjúkdóma. Áhrifaþættir á heilsu eru svo fjölmargir og af nógu að taka. Markmiðið er að valdefla okkur og fræðast til heilsueflingar! Við erum stoltar af því að kynna heilsuherinn okkar - fyrirtæki sem ætla að koma með okkur í þetta heilsuferðalag - til heilsueflingar!  Bíóbú framleiðir lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur - biobu.is Brauð&Co - nota lífrænt korn í ekta súrdeigsbrauð - ekkert ger og engin aukaefni - allt búið til á staðnum - braudogco.is Greenfit - býður upp á heilsumælingar og meðferðir  - styður fólk til betri heilsu - greenfit.is Húsaskjól - umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist - husaskjol.is Hreyfing - í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta stöðin sl. fjögur ár samkvæmt Maskínu - hreyfing.is Nettó - í forystu heilsueflingar á smávörumarkaðnum - með bestu heilsudeild landsins - netto.is

Kannabis til lækninga | Vísindin, þúsundir sjúklinga og reynslan af notkun kannabis í meðferð erfiðra sjúkdóma | Dr. Bonni Goldstein

🌿 Getur kannabis raunverulega verið lyf? 🧠 Hvað er endókannabínóíðkerfið – og hvers vegna lærðu margir læknar svo lítið um það í læknanámi? 🔬 Hvað segja rannsóknirnar og hvað hefur læknir sem hefur unnið með þúsundum sjúklinga séð í eigin starfi? Gestur okkar í Heilsuhlaðvarpinu er Dr. Bonni Goldstein, bandarískur barnalæknir og einn þekktasti sérfræðingur heims á sviði kannabínóíðalækninga. 👩‍⚕️ Bonni kemur úr mjög hefðbundnum læknisfræðilegum bakgrunni. Hún lærði barnalækningar, starfaði á Children’s Hospital Los Angeles, var þar Chief Resident og vann síðar á bráðamóttöku barna. En vegferð hennar tók óvænta stefnu þegar hún varð vitni að því hvernig alvarlega veikur vinur hennar fékk mikinn ávinning af kannabis. Það varð til þess að hún fór sjálf að kafa ofan í rannsóknirnar – og uppgötvaði heilan heim sem hún hafði fengið litla fræðslu um í læknanámi. 🌱 Frá árinu 2008 hefur Bonni unnið með þúsundum sjúklinga, bæði börnum og fullorðnum, sem glíma meðal annars við flogaveiki, einhverfu, krabbamein, langvinna verki og ýmsa flókna sjúkdóma og kvilla. 🎙️ Í þættinum ræðum við meðal annars: 🧠 Hvað er endókannabínóíðkerfið og hvers vegna skiptir það máli fyrir starfsemi líkamans? 🌿 Hvernig hafa THC, CBD og önnur kannabínóíð áhrif á líkamann? 🔬 Hvað segja rannsóknirnar í raun um kannabis til lækninga? 👶 Hvað hefur Bonni séð í starfi sínu með börnum með erfiða og flókna sjúkdóma eins og krabbameina, margs konar taugasjúkdóma og taugaþroskaraskanna eins og einhverfu? 💊 Getur kannabis í einhverjum tilfellum hjálpað fólki að minnka notkun annarra lyfja? ⚠️ Hvaða áhætta og aukaverkanir fylgja kannabisnotkun í lækningaskyni? 🩺 Og hvað með sjúklingana sem hefðbundin læknisfræði hefur ekki náð að hjálpa nægilega – eigum við að vera opnari fyrir öðrum meðferðarúrræðum þegar hefðbundnar leiðir hafa ekki skilað árangri? 📚 Bonni er höfundur bókanna Cannabis Revealed og Cannabis Is Medicine, þar sem hún útskýrir vísindin á bak við kannabis sem læknisfræðilegt meðferðarúrræði og endókannabínóíðkerfið á aðgengilegan hátt. 🎧 Þetta er gríðarlega áhugavert samtal um læknisfræði, vísindi, fordóma og möguleika. ❤️ Samstarfsaðilar Heilsuhlaðvarpsins 🥩 Kjarnafæði – íslenskar kjötvörur og gömlu góðu uppskriftirnar, meðal annars lifrarpylsa og sviðasulta án óþarfa aukaefna - kjarnafaedi.is 🛒 Nettó – frábær tilboð alla daga - mikið úrval af lífrænum vörum og hollustuvörum - netto.is 🥛 Bíóbú – íslenskar lífrænar mjólkurvörur með meira af góðum fitusýrum - búskapur sem setur heilsu lífríkis jarðar í fyrsta sætið - biobu.is 🌱 Greenfit – heilsumælingar, rauðljós, súrefnisklefi, kuldaklefi með meiru - greenfit.is

Heiti potturinn | Svefnlyfjaþjóðin | Drífa Sigfúsdóttir | Aukaverkanir, ávanamyndun og leiðin út úr svefnlyfjanotkun

💊 SVEFNLYFJAÞJÓÐIN – HVAÐ GERIST ÞEGAR SKAMMTÍMALAUSN VERÐUR AÐ ÁRALANGRI VENJU? 😴 Íslendingar hafa lengi verið meðal þeirra þjóða sem nota mest af svefn- og slævandi lyfjum. Árið 2024 var notkunin hér á landi sú næstmesta meðal þeirra 34 OECD-ríkja sem skiluðu samanburðarhæfum gögnum og á síðasta ári notuðu tæplega 25.000 Íslendingar Z-svefnlyf á borð við Imovane og Stilnoct eða önnur slævandi lyf. Notkunin eykst verulega með aldri og yfir þriðjungur fólks 80 ára og eldra notaði slík lyf. Í þessum þætti fáum við til okkar Drífu Sigfúsdóttur, sem tók virkan þátt í fræðsluverkefninu Sofðu vel á vegum Landssambands eldri borgara. Verkefnið var unnið að frumkvæði og undir forystu Önnu Birnu Almarsdóttur, prófessors við Kaupmannahafnarháskóla, í samstarfi við LEB og aðila úr heilbrigðiskerfinu. Markmiðið var að fræða fólk um svefnlyf, mögulega áhættu þeirra og aðrar leiðir til að takast á við svefnvanda. Drífa hefur sérstaka ástæðu fyrir því að brenna fyrir þessu málefni. Móðir hennar tók svefnlyf árum saman og Drífa telur að slæving og byltur hafi átt þátt í þeirri atburðarás sem endaði með því að móðir hennar þurfti að nota hjólastól. Drífa segir að fjölskyldan hafi aldrei verið upplýst um að lyfin gætu haft slík áhrif. Sú reynsla varð henni mikil hvatning til að fræða aðra. 🎙️ Við förum vítt og breitt yfir svefnlyfjanotkun Íslendinga: 💊 Hvað gera svefnlyf í raun fyrir svefninn? 😴 Hvað gerist þegar þau eru tekin mánuðum eða jafnvel árum saman? 🧠 Við ræðum minni og vitræna getu og rannsóknir sem hafa sýnt möguleg tengsl langtímanotkunar ákveðinna svefnlyfja við heilabilun.  🚶‍♀️ Við ræðum gríðarlega alvarlegar aukaverkanir sem geta haft sérstaklega alvarlegar afleiðingar fyrir eldra fólk. ⚠️ Hvað með þol og ávanamyndun? Hvað gerist þegar lyf sem upphaflega voru hugsuð sem skammtímalausn verða hluti af kvöldrútínunni árum saman? 💤 Er svefn undir áhrifum svefnlyfja það sama og náttúrulegur svefn? 💊 Og erum við í raun að draga úr svefnlyfjanotkun – eða er hluti hennar einfaldlega að færast yfir í önnur slævandi lyf? Við ræðum líka hvernig hægt er að draga úr eða hætta notkun svefnlyfja á öruggan hátt, hvaða önnur úrræði eru til við langvinnum svefnvanda og hvers vegna mikilvægt er að gera slíkar breytingar í samráði við heilbrigðisstarfsfólk. 🌙 Árangurinn af Sofðu vel vekur athygli. Í könnun meðal 2.172 eldri borgara kom fram að meðal þeirra sem höfðu kynnt sér fræðsluna og notað svefnlyf áður en átakið hófst sögðust 46,4% hafa minnkað notkunina eða hætt alveg. 👉 Þáttur fyrir alla sem taka svefnlyf, eiga foreldra eða aðstandendur sem gera það – eða vilja einfaldlega vita meira um hvað gerist þegar svefnvandinn er meðhöndlaður með lyfjum til lengri tíma. ❤️ Samstarfsaðilar Heilsuhlaðvarpsins 🥩 Kjarnafæði – íslenskar kjötvörur og gömlu góðu uppskriftirnar, meðal annars lifrarpylsa og sviðasulta án óþarfa aukaefna - kjarnafaedi.is 🛒 Nettó – frábær tilboð alla daga - mikið úrval af lífrænum vörum og hollustuvörum - netto.is 🥛 Bíóbú – íslenskar lífrænar mjólkurvörur með meira af góðum fitusýrum - búskapur sem setur heilsu lífríkis jarðar í fyrsta sætið - biobu.is 🌱 Greenfit – heilsumælingar, rauðljós, súrefnisklefi, kuldaklefi með meiru - greenfit.is

Kollagen – timbrið í byggingu líkamans | Hvað heldur húðinni heilbrigðri? | Dr. Lára G. Sigurðardóttir

✨ Hvað getum við sjálf gert til að halda húðinni heilbrigðri, sterkri og fallegri með aldrinum? Í þessum þætti Heilsuhlaðvarpsins fáum við til okkar Dr. Láru G. Sigurðardóttur, lækni með sérmenntun í lýðheilsu- og taugavísindum, og annan eiganda HÚÐIN Skin clinic - og förum yfir nánast allt sem viðkemur heilbrigði húðarinnar – og sérstaklega kollageninu. 🧬✨ Húðin snýst nefnilega um miklu meira en útlitið. Hún er stórt og virkt líffæri, mikilvægur varnarmúr líkamans, tekur þátt í vökvabúskap og hitastjórnun og á í nánu samtali við taugakerfið. En hvað þarf húðin til að geta sinnt öllum þessum mikilvægu hlutverkum? 🧬 „Kollagen er timbrið í byggingu líkamans,“ segir Lára. Við förum yfir hvað kollagen er, hvers vegna það er svona mikilvægt fyrir húðina og hvaða hlutverki það gegnir víðar í líkamanum – meðal annars í bandvef, beinum og æðum. Hvað gerist svo þegar kollagenframleiðslan minnkar með aldrinum? Getum við hægt á því ferli – eða jafnvel stutt líkamann í að framleiða meira kollagen? 🥩🐟 Við ræðum næringuna sem húðin og kollagenframleiðslan þurfa – prótein og amínósýrur á borð við glýsín, prólín og lýsín, en einnig mikilvægi C-vítamíns, sinks og járns. Hvað með beinasoð, fiskroð og kjúklingaskinn? Og hvað segja gögnin um kollagenpeptíð og kollagen sem fæðubótarefni? 🐟 Við förum einnig í  omega-3 og ræðum hvaða áhrif fita og önnur næringarefni geta haft á húðina. ☀️ Og svo er það sólin. Við ræðum morgunbirtuna, lífsklukkuna og mikilvægi birtunnar fyrir líkamann, en líka UV-geislun, húðöldrun, sólbruna og sólarvarnir. Hvernig finnum við skynsamlegt jafnvægi? 🏃‍♀️😴 Hreyfing, svefn og streita koma einnig við sögu. Getur góður svefn og regluleg hreyfing stutt við kollagen og heilbrigða öldrun húðarinnar? Og hvaða áhrif hafa reykingar, áfengi og langvarandi streita? Við komum líka inn á húðflóruna, plast og efni í umhverfinu okkar, sánuna og svitamyndun – og veltum fyrir okkur hvað raunverulega skiptir máli þegar við viljum hugsa vel um húðina til framtíðar. 🌿 Fróðlegt og hagnýtt samtal um stærsta líffæri líkamans – húðina – og hvað við getum sjálf gert til að styðja við heilbrigði hennar, innan frá og utan. ❤️ Samstarfsaðilar Heilsuhlaðvarpsins 🥩 Kjarnafæði – íslenskar kjötvörur og gömlu góðu uppskriftirnar, meðal annars lifrarpylsa og sviðasulta án óþarfa aukaefna - kjarnafaedi.is 🛒 Nettó – frábær tilboð alla daga - mikið úrval af lífrænum vörum og hollustuvörum - netto.is 🥛 Bíóbú – íslenskar lífrænar mjólkurvörur með meira af góðum fitusýrum - búskapur sem setur heilsu lífríkis jarðar í fyrsta sætið - biobu.is 🌱 Greenfit – heilsumælingar, rauðljós, súrefnisklefi, kuldaklefi með meiru - greenfit.is

Hvað gerist þegar við losum um fasíuna? | Verkir, trauma, taugakerfið og andlitslyfting | Ingunn Ragna Sævarsdóttir | Frá krónískum verkjum til verkjaleysis

Fasían, taugakerfið og trauma | Frá krónískum verkjum til verkjaleysis | Ingunn Ragna Sævarsdóttir Í þessum þætti Heilsuhlaðvarpsins ræðum við við Ingunni Rögnu Sævarsdóttur, þjálfara og leiðbeinanda í Fascial Maneuvers aðferð Human Garage og stofnanda Lotus Þjálfunar. 💥 Ingunn þekkir langvarandi verki ekki aðeins af faglegri reynslu heldur af eigin raun. Eftir bílslys glímdi hún árum saman við alvarlega króníska taugaverki og þrenndartaugaverki – trigeminal neuralgia – sem hafa jafnvel verið kallaðir „suicide disease“ vegna þess hversu gríðarlega sársaukafullir þeir geta verið. Sársaukinn varð hluti af daglegu lífi hennar og leitin að leið út úr honum leiddi hana inn á fjölmargar ólíkar brautir. Í dag segir Ingunn frá því að hún sé verkjalaus. 🌿 Hvað breyttist? Í þættinum förum við djúpt í hennar eigin vegferð og þá þekkingu sem hún hefur safnað á leiðinni – en meginviðfangsefnið er eitt mest spennandi kerfi líkamans: fasían, eða bandvefurinn. Við ræðum meðal annars: ✨ Hvað fasían eiginlega er og hvers vegna hún skiptir svona miklu máli 🧠 Tengsl fasíunnar og taugakerfisins 💥 Hvernig áföll, streita og langvarandi spenna geta komið fram í líkamanum 🌀 Fascial Maneuvers og nálgun Human Garage 🙌 Ingunn sýnir okkur og segir frá nokkrum einföldum aðferðum sem hún notar til að vinna með og losa um spennu í fasíunni 🤸‍♀️ Hreyfingu, öndun og mikilvægi þess að vinna með líkamann sem eina heild ❤️ Hennar eigin leið út úr langvarandi verkjum 🎶 Tónheilun, hljóð, titring og áhrif djúprar slökunar á taugakerfið ✨ Náttúruleg andlitslyfting – hvernig vinna með og losun spennu í fasíunni getur haft áhrif á útlitið 🌱 Og hvað við sjálf getum gert til að skapa líkamanum betri skilyrði til að ná jafnvægi Þetta er einstaklega áhugavert samtal um verki, fasíu, taugakerfið, áföll og möguleika líkamans til breytinga – en líka saga konu sem neitaði að sætta sig við að lifa áfram við stöðuga verki. 🎧 Þáttur sem getur sérstaklega átt erindi við alla sem glíma við langvarandi verki, spennu eða streitu – eða vilja einfaldlega skilja líkamann sinn betur. ❤️ Samstarfsaðilar Heilsuhlaðvarpsins 🥩 Kjarnafæði – íslenskar kjötvörur og gömlu góðu uppskriftirnar, meðal annars lifrarpylsa og sviðasulta án óþarfa aukaefna - kjarnafaedi.is 🛒 Nettó – frábær tilboð alla daga - mikið úrval af lífrænum vörum og hollustuvörum - netto.is 🥛 Bíóbú – íslenskar lífrænar mjólkurvörur með meira af góðum fitusýrum - biobu.is 🌱 Greenfit – heilsumælingar, rauðljós, súrefnisklefi, kuldaklefi með meiru - greenfit.is  🏋️ Hreyfing – heilsurækt þar sem hreyfing, vellíðan og heilsa fara saman - hreyfing.is

Kannabis – frá fordómum til upplýstrar notkunar | Lyf, vímuefni eða wellness? | Hvað hefur lögleiðing víða í Bandaríkjunum kennt okkur? | Dr. Magnús Þórsson

🌿 Kannabis – frá fordómum yfir í fræðslu, rannsóknir og upplýstari notkun Í Heita potti Heilsuhlaðvarpsins fáum við til okkar Dr. Magnús Þórsson, prófessor í frumkvöðlafræði við Johnson & Wales University í Bandaríkjunum og stofnanda Canna Curious Wellness. Magnús hefur um árabil rannsakað neytendahegðun, nýsköpun og kannabismarkaðinn og tekið þátt í að þróa háskólanám tengt kannabis og frumkvöðlafræði. Hann hefur því fylgst náið með þeirri gríðarlegu breytingu sem orðið hefur í Bandaríkjunum þar sem kannabis hefur víða færst úr neðanjarðarheimi yfir í löglegan og ört vaxandi markað. 🌱 En hvað hefur þessi reynsla kennt okkur? Við ræðum við Magnús um kannabis frá mörgum hliðum – THC, CBD, CBG, terpena og önnur virk efni plöntunnar.  Við tölum líka um notkun kannabis í tengslum við svefn, verki, streitu, slökun og lífsgæði, og hvers vegna fólk yfir fimmtugu er orðið sérstaklega áhugaverður hópur í þessari þróun. Hvar liggja raunveruleg tækifæri – og hvar þarf að stíga varlega til jarðar? 🍷 Getur kannabis hjálpað fólki að draga úr neyslu áfengis? 🌿 Hver er munurinn á CBD, THC og öðrum kannabínóíðum? ⚖️ Hvernig hefur tekist við lögleiðingu í Bandaríkjunum? 🇮🇸 Og hvað gæti Ísland lært af reynslu þeirra ríkja sem hafa þegar farið þessa leið? 🎙️ Forvitnilegt, opið og fræðandi samtal við Íslending sem hefur setið í fremstu röð og fylgst með einni mestu breytingu sem orðið hefur á viðhorfum, löggjöf og neytendahegðun í kringum kannabis á síðustu árum. ❤️ Samstarfsaðilar Heilsuhlaðvarpsins 🏋️ Hreyfing – heilsurækt þar sem hreyfing, vellíðan og heilsa fara saman - hreyfing.is 🛒 Nettó – uppskerudagar - frábær tilboð á nýju íslensku grænmeti og fleiru - netto.is 🥛 Bíóbú – íslenskar lífrænar mjólkurvörur með meira af góðum fitusýrum - biobu.is 🥩 Kjarnafæði – íslenskar kjötvörur og gömlu góðu uppskriftirnar, meðal annars lifrarpylsa og sviðasulta án óþarfa aukaefna - kjarnafaedi.is 🌱 Greenfit – heilsumælingar, rauðljós, súrefnisklefi, kuldaklefi með meiru - greenfit.is

Að eldast án þess að verða gamall | Hörður Torfason | Að ganga aftur á bak til betri heilsu, dagleg heilsuráð og lífið sjálft

🎙️ Að ganga aftur á bak og hvað heldur okkur ungum – í líkama og sál? Í þessum þætti fáum við til okkar Hörð Torfason, einn af litríkari og merkilegri persónum íslenskrar menningar- og samfélagssögu. Hörður er söngvaskáld, leikari, leikstjóri, leikskáld og mannréttindabaráttumaður og hefur í meira en hálfa öld látið rödd sína heyrast – bæði á sviði og í samfélagsumræðunni.  Hörður fæddist árið 1945 og varð 81 árs á þessu ári – en þegar maður hittir hann er erfitt að trúa þeirri tölu. Hann er léttur í spori, orkumikill og lítur út fyrir að vera áratugum yngri. 🌱✨ Upphaflega ætluðum við að ræða við Hörð um eitt sérstakt atriði sem hann hefur tekið upp: að ganga aftur á bak. 🚶‍♂️↩️ Hann segir okkur hvers vegna hann byrjaði á því, hvaða breytingum hann fann fyrir og hvernig þetta hefur orðið hluti af því sem hann gerir til að halda líkamanum gangandi. En spjallið fór fljótt miklu víðar. ❤️ Við tölum um heilsu, hreyfingu, öldrun, lífið og tilveruna, hvernig við getum haldið áfram að rækta forvitni og lífskraft eftir því sem árin færast yfir og hvað Hörður sjálfur gerir dagsdaglega til að viðhalda bæði líkamlegri og andlegri heilsu. 🎙️ Heilsuhlaðvarp Lukku og Jóhönnu Vilhjálms Þátturinn er unninn í samstarfi við frábæra samstarfsaðila okkar: 💚 Hreyfingu – þar sem heilsa, hreyfing og vellíðan eru í fyrirrúmi. Námskeið að hefjast! Ef þú hefur ekki komið til þeirra áður eða þarft aðstoð við að koma þér af stað getur þú bókað frían tíma með ráðgjafa hér! 🐄 Bíóbú – BioBú er fjölskyldufyrirtæki í fremstu röð í framleiðslu á lífrænum mjólkurvörum. Íslenskar lífrænar mjólkurvörur fyrir þau sem vilja velja lífrænt og njóta góðra mjólkurvara. biobu.is 🥩 Kjarnafæði – nýr samstarfsaðili Heilsuhlaðvarpsins! Við bjóðum Kjarnafæði hjartanlega velkomið í hópinn. Þar má meðal annars finna lifrarpylsuna og sviðasultuna, gerðar eftir gömlu góðu uppskriftunum, án aukaefna. Íslenskur matur og hefðir sem eiga svo sannarlega erindi við okkur enn í dag. 💛  🛒 Nettó – Uppskerudagar! Frábær tliboð á íslensku grænmeti og öðrum góðum vörum fyrir heimilið þitt. - kíktu á tilboðin á netto.is.  🥦 Greenfit – fyrir góða heilsu! Heilsumælingar, rauð ljós, súrefnis- og kuldameðferðir - greenfit.is.

Heiti potturinn | Þegar kerfið hefur ekki svörin | Meira val, frelsi og nýjar leiðir að heilsu | Þórarinn Ævarsson og Þórunn „Tóta“ Þórs Jónsdóttir

🌿 Eigum við að hafa meira val og meira frelsi þegar kemur að okkar eigin heilsu? Í þessum þætti eigum við opið og afar áhugavert samtal við Þórarinn Ævarsson og Þórunni „Tótu“ Þórs Jónsdóttur, stofnanda og drifkraftinn á bak við alþjóðlegu ráðstefnuna Health for the Future, sem fram fer í IÐNÓ dagana 18.–20. september. Við fórum víðan völl en rauði þráðurinn var einfaldur: Hvernig getum við skapað heilbrigðiskerfi þar sem fólk hefur fleiri raunverulega valkosti í sinni vegferð að betri heilsu? 💊 Hversu margir Íslendingar eru í dag á sterkum og jafnvel ávanabindandi lyfjum árum saman – og hversu auðvelt er að byrja að taka þau en erfitt að komast aftur af þeim? 🧩 Hvað verður um fólkið sem dettur á milli kerfa, fer á milli lækna og meðferða en finnur samt ekki lausn sinna mála? 🌱 Við ræðum reynslu fólks af kannabisi til lækninga og þær sögur þar sem einstaklingar segjast hafa náð miklum bata, dregið verulega úr hefðbundinni lyfjameðferð eða jafnvel hætt lyfjum sem þeir höfðu tekið árum saman og glímt við miklar aukaverkanir af. 🧠 Við förum einnig inn á vaxandi rannsóknir og umræðu um hugbreytandi efni í meðferð, möguleikana sem þar kunna að felast og hvers vegna mikilvægt er að geta rætt þessi mál af yfirvegun, byggt á vísindum, reynslu og öryggi – í stað þess að loka umræðunni fyrirfram. Við spyrjum meðal annars: Er heilbrigðiskerfið nægilega opið fyrir nýjum leiðum þegar hefðbundnar meðferðir duga ekki? Hver á að ráða hvaða meðferð einstaklingur má skoða? Og hvernig aukum við val án þess að slaka á kröfum um öryggi og fagmennsku? Þórarinn og Tóta segja jafnframt frá sinni eigin reynslu af veikindum og heilbrigðiskerfinu, reynslu sem hefur mótað sýn þeirra á þessi mál og löngunina til að opna umræðuna. Health for the Future leiðir saman lækna, vísindafólk, sjúklinga, frumkvöðla og fólk með ólíka reynslu til að ræða hvernig framtíð heilbrigðisþjónustunnar getur orðið opnari, fjölbreyttari og mannlegri. 🎧 Hugvekjandi og hreinskilið samtal um heilbrigðiskerfið eins og það er í dag – og hvernig það gæti litið út í framtíðinni ef við þorum að opna fleiri dyr. ✨ Við hvetjum alla sem láta sig þessi mál varða til að koma á Health for the Future og vera hluti af breytingunni. 🎟️ Afsláttarkóði: ICELAND33 Notið kóðann þegar þið kaupið miða á ráðstefnuna. 👉 Miðar: tickets.healthforthefuture.is Komum saman, tökum þátt í samtalinu og verum hluti af þeirri breytingu sem við viljum sjá í heilbrigðiskerfinu. 🌿 ------- 🎙️ Heilsuhlaðvarp Lukku og Jóhönnu Vilhjálms Þátturinn er unninn í samstarfi við frábæra samstarfsaðila okkar: 💚 Hreyfingu – þar sem heilsa, hreyfing og vellíðan eru í fyrirrúmi. Námskeið að hefjast! hreyfing.is 🐄 Bíóbú – Íslenskar lífrænar mjólkurvörur fyrir þau sem vilja velja lífrænt og njóta góðra mjólkurvara. 🥩 Kjarnafæði – nýr samstarfsaðili Heilsuhlaðvarpsins! Við bjóðum Kjarnafæði hjartanlega velkomið í hópinn. Þar má meðal annars finna lifrarpylsuna og sviðasultuna, gerðar eftir gömlu góðu uppskriftunum, án óþarfa aukaefna. Íslenskur matur og hefðir sem eiga svo sannarlega erindi við okkur enn í dag. 💛 🛒 Nettó – sem auðveldar okkur að velja vel í daglegu lífi. Frábær tilboð á netto.is.  🥦 Greenfit – fyrir góða heilsu! Heilsumælingar, rauð ljós, súrefnis- og kuldameðferðir - greenfit.is.

Sjúkdómurinn sem breytti öllu – og baráttan fyrir fleiri valkostum í heilbrigðiskerfinu | Siggi Jóhannesson | Hampur til lækninga

🎙️ Hvað gerist þegar dóttir þín greinist með einn flóknasta og sjaldgæfasta taugasjúkdóm heims – og framtíðin er allt í einu full af óvissu? Í þessum þætti ræðum við við Sigurð Hólmar Jóhannesson, Sigga Jóhannesson, um einstaka vegferð hans og eiginkonu hans Ragnheiðar Erlu Hjaltadóttur eftir að dóttir þeirra, Sunna Valdís, greindist um eins árs aldurinn með Alternating Hemiplegia of Childhood (AHC). Sunna Valdís er orðin tvítug í dag og hefur fjölskyldan í nær tvo áratugi tekist á við áskoranir sem fáir geta ímyndað sér. En þetta er ekki aðeins saga um erfiðleika. Þetta er saga um æðruleysi, ótrúlega þrautseigju, ást og fólk sem ákvað að láta eigin reynslu verða öðrum til góðs. 💛 Við ræðum meðal annars: 🧠 AHC – sjúkdóminn sem breytti öllu. Hvernig birtist hann, hvað þýðir hann fyrir daglegt líf og hvernig hefur fjölskyldan tekist á við óvissuna? 👨‍👩‍👧 Vegferð fjölskyldunnar. Hvernig halda foreldrar áfram þegar barnið þeirra glímir við svo alvarleg veikindi? Hvað hefur þessi reynsla kennt þeim um lífið, vonina og það sem raunverulega skiptir máli? 🌿 CBD og baráttuna fyrir aðgangi að meðferð. Siggi segir frá því hversu mikilvægt CBD reyndist Sunnu Valdísi og hvernig fjölskyldan þurfti að berjast fyrir því að geta veitt henni þá meðferð sem þau töldu hjálpa henni. Við ræðum stofnun Hampfélagsins, innflutning CBD-olía, verslunina sem þau stofnuðu og átökin við kerfið. 🔬 Hvað hafa vísindin sýnt um lækningalega möguleika kannabisefna?  🏥 Heilbrigðiskerfið – og hvað þarf að breytast? Hvað gerist þegar fjölskyldur þurfa sjálfar að leita lausna, berjast fyrir hjálpartækjum eða knýja fram breytingar? Og hvernig getur reynsla þeirra nýst öðrum sem glíma við langvinn veikindi eða fötlun? ♿ Hjálpartæki sem bæta lífsgæði. Fjölskyldan hóf einnig innflutning hjálpartækja fyrir fatlað fólk og hefur barist fyrir því að aðgangur að þeim sé betri. 🌍 Frá Íslandi til rannsóknarstofa Evrópu og Bandaríkjanna. Siggi segir frá því hvernig þau hafa tengt saman vísindafólk, fjölskyldur og samtök, stutt rannsóknir á AHC, stofnað samtök á heimsvísu og hér á landi og unnið að heimildarmyndum sem vekja athygli á sjúkdómnum. ⌚ VALDÍS – úr sem ber nafn dótturinnar. Við ræðum nýjasta verkefni Sigga, úr sem hann hannaði og tileinkaði Sunnu Valdísi, þar sem markmiðið er að styðja rannsóknir og færa fjölskyldum um allan heim meiri von. ✨ Þetta er þáttur sem á erindi við miklu fleiri en þá sem þekkja AHC. Hér er að finna reynslu, upplýsingar og hugmyndir sem geta nýst fólki sem glímir við hvers kyns sjúkdóma, langvinn veikindi eða fötlun – og aðstandendum þeirra. Um leið er þetta hugvekjandi samtal um það hvernig einstaklingar geta haft áhrif á samfélagið, breytt kerfum og opnað nýjar leiðir fyrir aðra. Hlustaðu á einstaka sögu um ást, baráttu og von – og hvernig erfiðasta reynsla lífsins getur orðið að afli sem bætir líf annarra. 🎧💛   🎙️ Heilsuhlaðvarp Lukku og Jóhönnu Vilhjálms Þátturinn er unninn í samstarfi við frábæra samstarfsaðila okkar: 💚 Hreyfingu – þar sem heilsa, hreyfing og vellíðan eru í fyrirrúmi. Námskeið að hefjast! hreyfing.is 🐄 Bíóbú – Íslenskar lífrænar mjólkurvörur fyrir þau sem vilja velja lífrænt og njóta góðra mjólkurvara. 🥩 Kjarnafæði – nýr samstarfsaðili Heilsuhlaðvarpsins! Við bjóðum Kjarnafæði hjartanlega velkomið í hópinn. Þar má meðal annars finna lifrarpylsuna og sviðasultuna, gerðar eftir gömlu góðu uppskriftunum, án aukaefna. Íslenskur matur og hefðir sem eiga svo sannarlega erindi við okkur enn í dag. 💛 🛒 Nettó – sem auðveldar okkur að velja vel í daglegu lífi. Frábær tilboð á netto.is.  🥦 Greenfit – fyrir góða heilsu! Heilsumælingar, rauð ljós, súrefnis- og kuldameðferðir - greenfit.is. ----- 🌿 Ráðstefnan sem við ræddum um og Siggi kemur fram á: Health for the Future: healthforthefuture.is  — 33% afsláttur fyrir Íslendinga af miðum á viðburðinn. 🛍️ Betri dagar – verslun fjölskyldunnar: betridagar.is  — CBD-olíur og aðrar vörur sem þau hafa kynnt og flutt inn. 🧠 AHC-samtökin á Íslandi: ahc.is  — upplýsingar um sjúkdóminn, starf samtakanna og baráttuna fyrir rannsóknum og bættum lífsgæðum fólks með AHC og fjölskyldna þeirra.

Heyrnarskerðing og áhrif á lífið og heilaheilsu | Mikilvægi snemmbærrar greiningar | Er kominn tími á heyrnarpróf? | Eva Albrechtsen, háls-, nef- og eyrnalæknir með sérhæfingu í heyrnarfræðum

👂 Heyrnin – eitt mikilvægasta skynfærið sem við megum ekki taka sem sjálfsögðum hlut Í þessum þætti ræðum við við Evu Albrechtsen, háls-, nef- og eyrnalækni með sérhæfingu í heyrnarfræðum, um heyrnina – hvernig hún virkar, hversu mikilvæg hún er fyrir lífsgæði okkar og hvað við getum gert til að varðveita hana sem lengst. Heyrnarskerðing þróast oft hægt og lúmskt og margir átta sig ekki á því hversu mikið heyrnin hefur minnkað fyrr en hún er farin að hafa áhrif á samskipti, félagslíf og daglegt líf. En heyrnin tengist líka miklu fleiru en því að „heyra vel“. 🧠 Rannsóknir hafa meðal annars sýnt sterk tengsl milli ómeðhöndlaðrar heyrnarskerðingar og aukinnar hættu á vitrænni hnignun og heilabilun.  Í þættinum ræðum við meðal annars: 👂 Hvernig heyrnin virkar og hvað gerist þegar hún byrjar að skerðast 🔊 Helstu áhættuþætti heyrnarskerðingar – hávaða, aldur, erfðir, sjúkdóma og fleira 🎧 Hvernig við getum varið heyrnina í daglegu lífi - áhrif heyrnartóla - airpods 🧒 Af hverju góð heyrn skiptir gríðarlegu máli fyrir málþroska, nám og þroska barna 🩺 Hvers vegna mikilvægt er að uppgötva heyrnarskerðingu snemma 🧠 Tengsl heyrnarskerðingar við félagslega einangrun, vitrænni hnignun, heilabilun og Alzheimer 🔬 Hvaða heyrnartækni er í boði í dag – og hvað hefur breyst á síðustu árum 🦻 Hvenær heyrnartæki koma til greina og hvers vegna margir bíða allt of lengi 📊 Hvenær við ættum að fara í heyrnarpróf – jafnvel þótt okkur finnist við heyra ágætlega ⏳ Og mikilvæga spurningin: Getur verið orðið of seint að láta athuga heyrnina? Þetta er þáttur fyrir okkur öll – unga sem aldna – því góð heyrn snýst ekki bara um eyru. Hún snýst um samskipti, tengsl, virkni, sjálfstæði og lífsgæði. ❤️ 🎙️ Heilsuhlaðvarp Lukku og Jóhönnu Vilhjálms Þátturinn er unninn í samstarfi við frábæra samstarfsaðila okkar: 💚 Hreyfingu – þar sem heilsa, hreyfing og vellíðan eru í fyrirrúmi. Námskeið að hefjast! hreyfing.is 🛒 Nettó – sem auðveldar okkur að velja vel í daglegu lífi. Frábær tilboð á heilsudögum - netto.is.  🥦 Greenfit – fyrir góða heilsu! Heilsumælingar, rauð ljós, súrefnis- og kuldameðferðir - greenfit.is. 💧 Happy Hydrate – fyrir vökvun og steinefni sem styðja við rafleiðni líkamans - happyhydrate.is. ✨ GeoSilica – kísill unnin úr íslensku hitaveituvatni - náttúruafurð. Kísill er meðal annars mikilvægur fyrir uppbyggingu og styrk bandvefja, húðar, hárs og naglna. Geosilica.is. 🎧 Hlustaðu – og kannski er kominn tími til að bóka heyrnarpróf.

Hvernig verður öldrunarþjónusta framtíðarinnar - hvað þurfum við að gera og hvernig viljum við eldast? María Fjóla Harðardóttir fyrrverandi forstjóri Hrafnistu

👵🏼 Hvernig viljum við eldast – og er kerfið tilbúið fyrir það sem er fram undan? Í þessum þætti ræðum við við Maríu Fjólu Harðardóttur, hjúkrunarfræðing og fyrrverandi forstjóra Hrafnistu, sem hefur áratuga reynslu af öldrunarþjónustu og einstaka innsýn í það sem þarf að breytast. Við lifum lengur, eldri borgurum fjölgar hratt og álagið á kerfið mun aukast verulega á næstu árum. María Fjóla er skýr: kerfið verður að breytast. En hvernig? 🏡 Verður framtíðin fólgin í meiri þjónustu inn á heimilin? 🤖 Getur tæknin hjálpað okkur að búa lengur sjálfstætt? 💪 Hvað getum við sjálf gert í tíma til að undirbúa efri árin? ❤️ Hversu mikilvæg eru hreyfing, félagsleg tengsl, húsnæði og lífsgæði þegar við eldumst? 👥 Og hvernig getur samfélagið brugðist við fjölgun aldraðra án þess að gæði þjónustunnar skerðist? Við tölum líka um það sem kannski fáir vilja hugsa um fyrr en nauðsyn krefur: Hvernig viljum við sjálf hafa það þegar við verðum 80, 90 ára eða eldri? Og hvað getum við gert í dag til að eiga meiri möguleika á sjálfstæði og góðum lífsgæðum síðar? Hugvekjandi og mikilvægt samtal um mál sem snerta okkur öll – því öldrunarþjónusta framtíðarinnar snýst ekki bara um „aldraða“. Hún snýst um framtíð okkar allra. 🌿   🙏 Samstarfsaðilar Heilsuhlaðvarpsins Við þökkum kærlega samstarfsaðilum okkar fyrir samstarfið og stuðninginn: 🌱 Bíóbú — lífrænar íslenskar mjólkurvörur úr íslenskri mjólk með betri fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur. Heimasíða: www.biobu.is (biobu.is) Elskum lífrænu jógúrtina og einnig lífræna ísinn hjá Skúbb. 🏋️ Hreyfing — heilsurækt, þjálfun, spa og þjónusta fyrir fólk sem vill hlúa að líkama og vellíðan. Spa-ið þar er einstök upplifun - og svo er hægt að skrá sig í sérstakt heilsuprógramm og versla heilsuvörur á vefsíðunni. www.hreyfing.is (Hreyfing - Finndu muninn) 🌱 Greenfit – Heilsan þín á ekki að vera ráðgáta!  Heilsumælingar Greenfit eykur aðgengi almennings á mælingum og upplýsingum sem gefa þér innsýn í heilsuna og upplýsingar um hvernig má bæta stöðuna. www.greenfit.is  🛒 Nettó — frábært úrval lífrænna afurða, matvæla, vítamína og hreinlætisvara sem styðja við heilsu á góðu verði í verslunum um allt land. Vekjum athygli á hydroxyapatite tannkremi og frábæru úrvali af lífrænum vörum og vítamínum. Heimasíða: www.netto.is (netto.is) 💧 GeoSilica — íslensk steinefni úr jarðhitavatni, með áherslu á náttúrulegar og hreinar vörur.  Vörur á heimsmælikvarða! Kísillinn styður hár, húð, neglur, bein og liðamót á sjálfbæran og hreinan hátt – án aukaefna. Heimasíða: www.geosilica.is (GeoSilica Iceland) ⚡ Happy Hydrate — steinefnadrykkir með natríum, kalíum og magnesíum sem styðja við vökvajafnvægi og vöðvastarfsemi. Minnum sérstaklega á happy hydrate með creatini sem styður einnig við heilaheilsu. Heimasíða: www.happyhydrate.is (Happy Hydrate IS) 🎯 Markmið okkar í Heilsuhlaðvarpinu hefur alltaf verið að fræða, vekja áhuga og kynna leiðir sem geta stutt fólk á sinni heilsuvegferð. Því er sérstaklega ánægjulegt að eiga samstarf við fyrirtæki sem eru einnig á þeirri braut.

Þér gæti líka líkað...