Hera Rut og Thelma Rut Hólmarsdætur sjúkraþjálfarar um langvinna verki og hvernig við náum stjórn á þeim
Í þessum þætti fáum við til okkar systurnar og sjúkraþjálfarana Heru Rut og Thelmu Rut Hólmarsdætur, sem starfa á Reykjalundi. Þær hafa sérhæft sig í aðstoð við fólk sem glímir við langvinna verki og standa að átta vikna fjarnámskeiði sem byggir á heildrænni nálgun og nýjustu verkjavísindum, með fræðslu, heimaæfingum og stuðningi.
Við förum yfir hvernig fræðsla um verki, markviss hreyfing og raunhæf verkfæri í daglegu lífi geta hjálpað fólki að róa taugakerfið, draga úr ótta sem oft magnar verkina – og þar með minnka verki og bæta líðan. Um leið eykst öryggi í líkamanum, sem er lykillinn að því að byggja upp meiri getu til að takast á við daglegt líf.
Við ræðum líka mikilvægi stuðnings, spurninga og eftirfylgni í ferlinu. Að auki förum við yfir grunnþættina sem skipta máli þegar kemur að verkjum og bata: næringu, hreyfingu, svefn og félagsleg tengsl – og hvernig þessir þættir vinna saman til að styðja við betri heilsu og meiri lífsgæði.
Hvað “langvinnir verkir” eru (og af hverju þeir geta haldist þó vefir séu að gróa)
Hvernig fræðsla og skilningur á verkjum getur breytt upplifun og hegðun
Hvernig hreyfing og æfingar geta verið “lyf” – þegar þær eru rétt skammtaðar og aðlagaðar
Aðferðir til að lina verki, róa kerfið og lifa betur með þeim í daglegu lífi
Stuðning, eftirfylgni og raunhæf skref til að ná stjórn aftur
✨💚 Heilsuherinn okkar – fyrirtæki sem taka þátt í þessu heilsuferðalagi með okkur. ✨ Við þökkum þeim kærlega fyrir að vera hluti af þessu ferðalagi – á leið til betri heilsu fyrir alla. 💚 ✨
🥛 Bíóbú – lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur. biobu.is
💧 Happy Hydrate – besti æfingafélaginn, með söltum og steinefnum sem styðja við endurheimt eftir æfingu. happyhydrate.is
🍞 Brauð&Co – ekta súrdeigsbrauð úr lífrænu korni, án gers og aukaefna – ekkert drasl og allt búið til á staðnum. braudogco.is
🌿 Greenfit – heilsumælingar og meðferðir eins og súrefnis- og rauðljósameðferð sem styðja fólk til betri heilsu. greenfit.is
🏡 Húsaskjól – umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist. husaskjol.is
🏋️ Hreyfing – í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta líkamsræktarstöð landsins enn eitt árið í röð samkvæmt Maskínu - nú fimm ár í röð. hreyfing.is
🛒 Nettó – heilsudeild Nettó ætlar sér að taka forystu í að vera með bestu heilsudeild landsins. netto.is
Fleiri þættir af Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms
- Kannabis til lækninga | Vísindin, þúsundir sjúklinga og reynslan af notkun kannabis í meðferð erfiðra sjúkdóma | Dr. Bonni Goldstein5. október 2026
- Heiti potturinn | Svefnlyfjaþjóðin | Drífa Sigfúsdóttir | Aukaverkanir, ávanamyndun og leiðin út úr svefnlyfjanotkun1. október 2026
- Kollagen – timbrið í byggingu líkamans | Hvað heldur húðinni heilbrigðri? | Dr. Lára G. Sigurðardóttir28. september 2026
- Hvað gerist þegar við losum um fasíuna? | Verkir, trauma, taugakerfið og andlitslyfting | Ingunn Ragna Sævarsdóttir | Frá krónískum verkjum til verkjaleysis21. september 2026
- Kannabis – frá fordómum til upplýstrar notkunar | Lyf, vímuefni eða wellness? | Hvað hefur lögleiðing víða í Bandaríkjunum kennt okkur? | Dr. Magnús Þórsson17. september 2026
- Að eldast án þess að verða gamall | Hörður Torfason | Að ganga aftur á bak til betri heilsu, dagleg heilsuráð og lífið sjálft14. september 2026
