Guðrún Bergmann um heilsu, hreint mataræði, stjörnuspeki, himintungl og geimverur 💫

· Heilsa

Í sérstökum áramótaþætti fáum við til okkar Guðrúnu Bergmann – konu sem hefur í rúmlega fjóra áratugi miðlað þekkingu um heilsu, lífsstíl, sjálfsvinnu og andlega þróun. Guðrún er 75 ára, enn á fullu og knúin áfram af óbilandi ástríðu og forvitni – sannkallaður frumkvöðull sem hefur oft verið á undan sinni samtíð og ekki hikað við að fara á móti straumnum þegar sannfæring hennar hefur kallað á það.
Í þættinum ræðum við heilsuvegferð hennar, hvað það þýðir að standa í eigin sannleika, hvernig það er að ryðja nýjar brautir – og hvernig tímarnir hafa breyst. Samhliða horfum við fram á við:
🔮 Hvað ber næsta ár í skauti sér?
🌌 Guðrún deilir innsýn í stöðu stjarnanna, lykilhreyfingar reikistjarnanna á komandi ári og hvernig þær kunna að endurspeglast í lífi okkar – bæði einstaklingslega og á heimsvísu.
Við förum um víðan völl, ræðum heima og geima í orðsins fyllstu merkingu, tengsl manns og alheims, tímamót, breytingar og tækifæri.
 
✨💚 Heilsuherinn okkar – fyrirtæki sem taka þátt í þessu heilsuferðalagi með okkur. ✨ Við þökkum þeim kærlega fyrir að vera hluti af þessu ferðalagi – á leið til betri heilsu fyrir alla. 💚 ✨
🥛 Bíóbú – lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur. biobu.is
💧 Happy Hydrate – besti æfingafélaginn, með söltum og steinefnum sem styðja við endurheimt eftir æfingu. happyhydrate.is
🍞 Brauð&Co – ekta súrdeigsbrauð úr lífrænu korni, án gers og aukaefna – ekkert drasl og allt búið til á staðnum. braudogco.is
🌿 Greenfit – heilsumælingar og meðferðir eins og súrefnis- og rauðljósameðferð sem styðja fólk til betri heilsu. greenfit.is
🏡 Húsaskjól – umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist. husaskjol.is
🏋️ Hreyfing – í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta líkamsræktarstöð landsins enn eitt árið í röð samkvæmt Maskínu - nú fimm ár í röð. hreyfing.is
🛒 Nettó – heilsudeild Nettó ætlar sér að taka forystu í að vera með bestu heilsudeild landsins. netto.is

Fleiri þættir af Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms