Er risinn Jane Street arkitektinn að bjarnarmarkaðnum eða er verið að hengja bakara fyrir smið?
Í vikunni sem er að líða bárust fregnir af málshöfðun gegn markaðsrisanum Jane Street fyrir meint lögbrot sem eiga að hafa verið ein helsta ástæðan fyrir verðhruni Terra Luna árið 2022. Samhliða þeim fréttum skapaðist umfjöllun á X og víðar þess efnis að Jane Street hefði markvisst keyrt verð Bitcoin niður með daglegri sölu gífurlegs magns af Bitcoin, sem hefði hætt frá og með málsókninni. Bitcoin og aðrar rafmyntir hækkuðu gríðarlega í verði við þetta, en nú glímir markaðurinn við spurninguna: Er eitthvað að marka þessar staðhæfingar? Við nánari athugun blasir við að skortur er á fullnægjandi gögnum til þess að unnt sé að draga fyrirvaralausar ályktanir. Þetta og margt fleira ræða þeir félagar í þætti vikunnar.
Fleiri þættir af Hlaðvarp Myntkaupa
- Bitcoin heldur velli yfir 80k - Ekkert lát á innflæði kauphallarsjóða3. október 2026
- Meira en milljarður dollara flæðir inn í kauphallarsjóðina á einum degi26. september 2026
- Clarity frumvarpinu hafnað, stýrivextir hækkaðir í USA - Bitcoin segir "og hvað með það?"19. september 2026
- Nýjar verðbólgutölur í USA - Er samkomulag um Hormússund í nánd?12. september 2026
- Sterkar atvinnutölur í USA slá BTC niður fyrir 80k5. september 2026
- Innflæði BTC kauphallarsjóða nálgast þrjá milljarða USD í ágúst29. ágúst 2026
