Bitcoin fellur undir 60K - Meira en 50% lækkun frá októbermánuði
Segja má að söguleg hræðsla hafi heltekið rafmyntamarkaði síðustu daga. Eftir látlausar lækkanir á gengi BTC niður fyrir 70.000$ fyrstu dagana í febrúar fylgdi fimmtudagurinn, 5. febrúar, eftir með svæsnu verðfalli og fór Bitcoin niður fyrir 60.000$ um stutta stund, í um 59.800$. Solana fór um skamma hríð undir 70$ og sömu sögu mátti segja um flestar aðrar rafmyntir. Hræðsla mældist í 5 í Fear & Greed vísitölunni og hefur þetta reynt á andlegu hliðina hjá jafnvel reyndustu fjárfestum. Í þessum þætti reyna þeir félagar, Björn og Kjartan, eftir fremsta megni að ná utan um hvað veldur þessu og hverju má búast við í framhaldinu.
Fleiri þættir af Hlaðvarp Myntkaupa
- Bitcoin heldur velli yfir 80k - Ekkert lát á innflæði kauphallarsjóða3. október 2026
- Meira en milljarður dollara flæðir inn í kauphallarsjóðina á einum degi26. september 2026
- Clarity frumvarpinu hafnað, stýrivextir hækkaðir í USA - Bitcoin segir "og hvað með það?"19. september 2026
- Nýjar verðbólgutölur í USA - Er samkomulag um Hormússund í nánd?12. september 2026
- Sterkar atvinnutölur í USA slá BTC niður fyrir 80k5. september 2026
- Innflæði BTC kauphallarsjóða nálgast þrjá milljarða USD í ágúst29. ágúst 2026
