Víkingur Hauksson snýr aftur - Hvenær nær Bitcoin 1.000.000$?
Í þessum þætti kíkti stórvinur okkar og Bitcoin sérfræðingurinn Víkingur Hauksson í stúdíóið og fjallaði listilega um viðfangsefni sem hefur verið honum mjög hugleikið undanfarin 3 ár: Vöxtur Bitcoin samkvæmt veldislögmáli. Sjón er sögu ríkari og mælum við eindregið með áhorfi, ekki eingöngu hlustun. Víkingur sýnir gröf sem benda til þess að Bitcoin vaxi samkvæmt veldislögmáli, ekki aðeins með tilliti til verðs heldur einnig annarra þátta. Með hefðbundnum fyrirvörum má styðjast við þessi gröf til að álykta um verðþróun framtíðarinnar og fá vísi að svörum við áleitnum spurningum á við hvenær Bitcoin nær 1.000.000$.
Fleiri þættir af Hlaðvarp Myntkaupa
- Bitcoin heldur velli yfir 80k - Ekkert lát á innflæði kauphallarsjóða3. október 2026
- Meira en milljarður dollara flæðir inn í kauphallarsjóðina á einum degi26. september 2026
- Clarity frumvarpinu hafnað, stýrivextir hækkaðir í USA - Bitcoin segir "og hvað með það?"19. september 2026
- Nýjar verðbólgutölur í USA - Er samkomulag um Hormússund í nánd?12. september 2026
- Sterkar atvinnutölur í USA slá BTC niður fyrir 80k5. september 2026
- Innflæði BTC kauphallarsjóða nálgast þrjá milljarða USD í ágúst29. ágúst 2026
