Fréttahornið: Fall Silicon Valley Bank. Hvernig bregst rafmyntamarkaðurinn við?
Óhætt er að segja að atburðarás síðustu daga hafi valdið titringi á fjármálamörkuðum, en þrír bankar, Silvergate Capital, Silicon Valley Bank og New York Signature Bank, hafa allir fallið vestanhafs. Yfirvöld þar í landi hafa stigið inn í og tryggt allar innstæður bankanna að fullu. Þessir bankar hafa verið áberandi fyrir að þjónusta fyrirtæki í rafmyntageiranum, meðal annars Circle sem heldur utan um USDC.
Hvaða áhrif mun þetta koma til með að hafa? Af hverju hefur rafmyntamarkaðurinn rokið upp í kjölfarið? Hvað gerðist með USDC?
Um þessi atriði er fjallað í fréttahorni hlaðvarps Myntkaupa. Fréttahornið verður reglulegur liður þar sem fjallað er um mikilvæga viðburði í rafmyntaheiminum í suttu og hnitmiðuðu máli. Þátturinn er aðeins um fjórar mínútur og er samantekt á því helsta. Ekki er víst að öll kurl séu komin til grafar og má því vænta frekari og ítarlegri umfjöllun síðar í hlaðvarpi Myntkaupa.
Fleiri þættir af Hlaðvarp Myntkaupa
- Bitcoin heldur velli yfir 80k - Ekkert lát á innflæði kauphallarsjóða3. október 2026
- Meira en milljarður dollara flæðir inn í kauphallarsjóðina á einum degi26. september 2026
- Clarity frumvarpinu hafnað, stýrivextir hækkaðir í USA - Bitcoin segir "og hvað með það?"19. september 2026
- Nýjar verðbólgutölur í USA - Er samkomulag um Hormússund í nánd?12. september 2026
- Sterkar atvinnutölur í USA slá BTC niður fyrir 80k5. september 2026
- Innflæði BTC kauphallarsjóða nálgast þrjá milljarða USD í ágúst29. ágúst 2026
