hún hlaðvarp #1 Rakel Guðmundsdóttir
Kraftmikill frumkvöðull sem er ekki hrædd við að taka stökkið þegar hún sér tækifæri. Rakel Guðmundsdóttir , eignarhaldsstjóri hjá Alfa Framtak og annar stofnenda Venja, er gestur þáttarins. Við Rakel fórum yfir víðan völl í samtalinu okkar. Við ræddum um hvernig hlutverk stjórnar styður við bakið á stjórnendum fyrirtækja, frumkvöðlalífið og hvernig góð yfirsýn fjármagns skiptir öllu, stefnumótun og 100 daga áætlun. Að sjálfsögðu ræddum við líka móðurhlutverkið og hvernig forgangsröðun skiptir lykilmáli þegar kemur að því að halda jafnvægi. Í lokin ræddum við svo hvernig fyrirtæki og stjórnendur geta stutt við foreldra í fæðingarorlofi og sérstaklega eftir það, málefni sem stendur okkur báðum nær.
hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Bloom, Elko og Vichy.
Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir
Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir
Sérlegur ráðgjafi: Þórhallur Gunnarsson
hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó
Fleiri þættir af hún hlaðvarp
- hún hlaðvarp #18 Jenna Huld Eysteinsdóttir6. október 2026
- hún hlaðvarp #17 Safa Jemai30. september 2026
- hún hlaðvarp #16 Lilja Birgisdóttir23. september 2026
- hún hlaðvarp #15 Snædís Ögn Flosadóttir15. september 2026
- hún hlaðvarp #14 Lóa Dagjört Kristjánsdóttir9. september 2026
- hún hlaðvarp #13 Eva Ruza Miljevic1. september 2026
