Kaosklúbburinn

Kaosklúbburinn

Þrjár vinkonur og mæður með þér í kaosinu. Alexandra, Áslaug og Konný ræða hin ýmsu málefni - öll velkomin í klúbbinn. 100% trúnaði heitið.

Við hlustum og við dæmum ekki

Íslenska útgáfan af Tiktok-trendinu “we listen and we don’t judge” þar sem við ræðum ýmsa áhugaverða hluti. Munið bara að þetta er allt í 100% trúnaði.

Ég er betri en aðrir þegar…

Í þætti vikunnar ræðum við fyrsta klúður Kaosklúbbsins, erfitt hvort myndiru frekar og tökum fyrir hluti sem við gerum sem lætur okkur líða eins og við séum aðeins betri en aðrir.

Samfélagsmiðlar & afmælisþáttur

Afmælisþáttur Alexöndru og Konnýjar og við ræddum hið heita umræðuefni, samfélagsmiðla.

Ráð fyrir leikskólann - leikskólataskan

Alexandra og Áslaug ræða um allskonar leikskólatengt, fara yfir leikskólatöskuna og að sjálfsögðu kaos vikunnar.

Meðgöngurnar sjö

Ræðum meðgöngurnar okkar sjö í ekkert svo stuttu máli, daginn og veginn og kaos vikunnar.

Hlutir sem við hefðum viljað vita

Í þessum þætti ræðum við staðreyndir úr síðasta þætti, förum í skemmtilega liði og ræðum hluti sem við hefðum viljað vita um ýmislegt sem tengist því að vera fullorðinn.

Velkomin í klúbbinn!

Velkomin í Kaosklúbbinn! Í þessum þætti fáið þið að kynnast þáttastjórnendum, þeim Alexöndru, Áslaugu og Konný.