Aukasendingin: Grindvíkingar að vakna, of góðir fyrir 1. deildina og bestu liðin á hálfum velli
Nýr þáttur af Aukasendingunni er kominn í loftið! Að þessu sinni mæta þeir Jón Frí og Mummi Jones í settið til Davíðs Elds og taka stöðuna eftir enn eina viðburðaríka viku.
Farið er ítarlega yfir leiki síðustu umferðar í Bónusdeild karla og heitustu fréttir vikunnar reifaðar. Sérstök rýni er lögð á sóknarleik liðanna á hálfum velli (half-court offense) – hvaða lið eru að keyra kerfin sín af bestu nákvæmninni og hver eru í vandræðum þegar hraðaupphlaupin eru tekin í burtu. Þá beina félagarnir sjónum sínum að 1. deild karla og stilla upp lista yfir þá leikmenn sem hafa sýnt það mikil gæði að þeir gætu vel spilað í Bónusdeildinni og eiga skilið að fá tækifæri á stóra sviðinu.
Þáttinn má hlusta á í spilaranum hér að ofan ásamt því að vera aðgengilegur undir nafninu Karfan á öllum hlaðvarpsveitum.
Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.
Hér heimsækir þú Körfuna
Fleiri þættir af Karfan
- Aukasendingin: Sex kanar fyrir KR, brotthvarf Ingva og hverjir eru fúlir yfir landsliðsvalinu?15. nóvember 2026
- Aukasendingin: Leikmannamarkaðurinn hitnar, stór vika hjá stelpunum og Airwaves-draumaliðið8. nóvember 2026
- Aukasendingin: Slagsmál í Síkinu, sviptingar á styrkleikalistanum og brottrekstrarvofan1. nóvember 2026
- The Uncoachables: I Don't Watch The News (or Read It)23. október 2026
- Aukasendingin: Bestu kanarnir, fimm ljósir punktar og uppgjör á síðustu umferð18. október 2026
- Aukasendingin: Ofsaviðbrögð eftir fyrstu umferð, er Kane ennþá týndur og hrun Stjörnunnar?12. október 2026






