Aukasendingin: Sex kanar fyrir KR, brotthvarf Ingva og hverjir eru fúlir yfir landsliðsvalinu?
Nýr þáttur af Aukasendingunni er kominn í loftið! Að þessu sinni mættu þeir Höggið Heiðar Snær og Mummi Jones í settið til Davíðs Elds og fóru yfir allt það helsta sem er á seyði.
Félagarnir fara ítarlega yfir frábæra frammistöðu A-landsliðs kvenna, sem hefur landað tveimur glæsilegum sigrum á síðustu viku, ásamt því að rýna í komandi landsliðsverkefni karlalandsliðsins sem tekur við strax að lokinni næstu umferð í Bónusdeild karla. Í því samhengi velta þeir upp stórri spurningu: Hvaða leikmenn eru súrastir yfir því að hafa ekki fengið kallið í landsliðshópinn að þessu sinni?
Þá eru málefni Ármanns og KR tekin fyrir af fullum þunga. Rætt er um brotthvarf Ingva frá Ármanni og hvað tekur við hjá liðinu, á meðan sérfræðingarnir setja saman sérstakan óskalista yfir sex bandaríska leikmenn sem KR-ingar ættu að skoða til að fylla skarðið í kanalaust lið sitt.
Að lokum er kíkt yfir í Bæjarins Beztu deild kvenna þar sem farið er yfir þá leikmenn sem hafa farið best af stað í upphafi tímabils.
Þáttinn má hlusta á í spilaranum hér að ofan ásamt því að vera aðgengilegur undir nafninu Karfan á öllum hlaðvarpsveitum.
Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.
Hér heimsækir þú Körfuna
Fleiri þættir af Karfan
- Aukasendingin: Leikmannamarkaðurinn hitnar, stór vika hjá stelpunum og Airwaves-draumaliðið8. nóvember 2026
- Aukasendingin: Slagsmál í Síkinu, sviptingar á styrkleikalistanum og brottrekstrarvofan1. nóvember 2026
- Aukasendingin: Grindvíkingar að vakna, of góðir fyrir 1. deildina og bestu liðin á hálfum velli25. október 2026
- The Uncoachables: I Don't Watch The News (or Read It)23. október 2026
- Aukasendingin: Bestu kanarnir, fimm ljósir punktar og uppgjör á síðustu umferð18. október 2026
- Aukasendingin: Ofsaviðbrögð eftir fyrstu umferð, er Kane ennþá týndur og hrun Stjörnunnar?12. október 2026






