Ólafur Loftsson - Afreksstjóri GSÍ

· Sports

Ólafur Björn Loftsson er afreksstjóri Golfsambands Íslands og einn reyndasti kylfingur landsins. Ólafur á að baki glæsilegan feril sem landsliðskylfingur, þá var hann Íslandsmeistari í golfi og fyrsti Íslendingurinn til að keppa á PGA-mótaröðinni í Bandaríkjunum. Hann hefur einnig starfað sem framkvæmdastjóri PGA á Íslandi.
Í spjallinu fer hann yfir:

Vegferð sína sem afrekskylfings, reynslu hans á bandaríska háskólakerfinu og hvernig hann aðstoðar ungt afreksfólk við að komast í skóla með golfstyrk.
Hlutverk PGA á Íslandi og þróun golfíþróttarinnar hér heima.
Starf hans sem afreksstjóri GSÍ, markmið sambandsins og verkefni á sviði afreksmála.
Stærstu verkefni og mót sumarsins, bæði heima og erlendis.
Golf14 verkefnið og mikilvægi fjölbreyttrar íþróttaiðkunar hjá börnum.
Andlega og líkamlega þáttinn.
Ráð til bæði kylfinga um hvernig bæta má leik sinn í sumar.

Þáttur sem enginn golfáhugamaður ætti að láta fram hjá sér fara. Peppið var svo mikið að Silja fór að skoða golfkennara eftir þetta spjall.
Samstarfsaðilar Klefans eru: Powerade, Lengjan, Auður, Hafið Fiskverslun og Nutrilenk. 
@gsigolf
@klefinn.is
@siljaulfars

Klefinn með Silju Úlfars

Úr hlaðvarpinu

Klefinn með Silju Úlfars

Silja Úlfars

Allir þættir

Fleiri þættir af Klefinn með Silju Úlfars