Sigrún Haraldsdóttir - Happy Hips og bandvefslosun
Sigrún Haraldsdóttir er eigandi Happy Hips, sem er æfingakerfi þar sem hún blandar saman bandvefsnudd, hreyfiflæði, teygjur og slökun til að fá sem mest út úr líkamanum. Hún mætti með Beinu með sér og við skoðuðum líkamann og hvernig við getum látið hann vinna með okkur.
Sigrún fór yfir margt í þættinum eins og:
Hvernig við rúllum okkur og hvað gerist í líkamanum
Hvernig bolta viljum við frekar og af hverju
Hvenær á ungt fólk að byrja að rúlla sig
Hvað er bandvefur (spiderman gallinn) og hvað gerir hann?
Trigger punktar, hvað er það og hvernig vinnum við á þeim?
Hvernig þú ættir að rúlla fyrir æfingar og hvernig eftir
Þau sem stækka hratt
Hvað er sogæðakerfi og taugakerfi og hvernig hefur að rúlla áhrif á það tvennt.
Vagus taugin (flökku taugin)
Vöðvabólga, beinhimnabólga, IT bandið, Osgood Schlatter, hvernig við nuddum iljarnar
Djúpteygjur og hvernig er gott að teygja?
og ýmislegt fleira!
Það var svo margt nytsamt sem kom þarna fram, þú verður hreinlega að hlusta, eða helst að horfa (getur það á youtube eða á Spotify)!
Við getum glatt ykkur að fljótlega tökum við svo upp þætti með svona "rúllu tímum" og þú getur þá nýtt þér eða kíkt á Sigrúnu á Happyhips.is og fengið ítarlegri leiðbeiningar.
Samstarfsaðilar Klefans eru: Lengjan, Auður, Hafið Fiskverslun og Nutrilenk.
@happyhips.is
@klefinn.is
@siljaulfars
Fleiri þættir af Klefinn með Silju Úlfars
- Júlían J.K. Jóhansson - Kraftlyftingar31. október 2025
- Emil Hallfreðs - fyrrum knattspyrnumaður og “skólastjóri”24. október 2025
- Fanney Þóra - Handbolti og krabbamein17. október 2025
- Mist Edvardsdóttir - Fótbolti og Krabbamein13. október 2025
- Sigurbjörn Árni fer yfir Heimsmeistaramótið í frjálsum íþróttum11. september 2025
- Hrefna Hlín - Verkefnastjóri Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka15. ágúst 2025






