Helena Sverrisdóttir - fyrrum atvinnukona í körfubolta

· Sports

Helena er ein farsælasta körfuboltakona Íslands. Helena á nánast öll met sem hægt er að setja í körfuboltanum, en hún lék sinn fyrsta meistaraflokksleik 12 ára og fyrsta landsleik 14 ára.

Helena ræðir ferilinn, hún fór í Texas Christian University og náði frábærum árangri þar, en í haust verður hún tekin inn í frægðarhöll TCU. Helena spilaði sem atvinnukona í Slóvakíu, Ungverjalandi og Póllandi, en hún fann mun á að koma úr háskóla “bubblunni” yfir í atvinnumennskuna þar sem þú þarft að standa meira á eigin fótum.

Hugarþjálfun, meiðsli íþróttafólks, sjálfstraust og að taka erfiðu skotin er meðal annars það sem Helena ræðir.

Í dag er Helena að þjálfa, en hún fer aðeins yfir það hvernig körfuboltafólk nýtir sumrin, en finnst leitt hvað landsliðsverkefni unglinga eru dreifð yfir sumartímann sem getur haft áhrif á undirbúningstímabilið.

Þátturinn er í boði Útilífs, Heilsuhillunnar, Hafið fiskverslun og GoodGood.

Þú finnur okkur á instagram
@klefinn.is
@siljaulfars
@helenasverris

Klefinn með Silju Úlfars

Úr hlaðvarpinu

Klefinn með Silju Úlfars

Silja Úlfars

Allir þættir

Fleiri þættir af Klefinn með Silju Úlfars