19. Helena S. Jónsdóttir, meistaranemi í tölvunarfræði við Columbia háskóla
Í þessum þætti bjóðum við velkomna Helenu Sveinborgu Jónsdóttur sem er meistaranemi í tölvunarfræði við Columbia háskóla í New York. Helena er með tvær BS gráður frá Háskólanum Reykjavík, í vélaverkfræði og tölvunarfræði.
Undanfarna mánuði hefur Helena starfrækt ada_konur aðganginn á Instagram þar sem konur í hugbúnaðargeiranum segja frá degi í lífi sínu sem hefur vakið verðskuldaða athygli og varð til þess að hún fékk á dögunum bæði styrk úr sjóði FrumkvöðlaAuðar og var tilfnefnd til Nordic Women in Tech Awards.
Í þættinum ræða Hildur og Helena meðal annars:
• Hvað varð til þess að hún byrjaði í heilbrigðisverkfræði en kláraði vélaverkfræði og tölvunarfræði
• Hvað valáfangi sem hún tók í Matlab (forritunarmáli) varð til þess að kveikja áhuga á tölvunarfræði
• Hvað það er dýrmæt reynsla að fá sumarstörf með háskólanámi sem tengjast náminu
• Lífið í New York og hvað það opnar sjóndeildarhringinn að stunda nám með fólki sem kemur frá öllum heimshornum
• Hvað það er spennandi að vera í tölvunarfræðinámi nú þegar gervigreind er að verða stærri hluti af lífi fólks
• Kröfurnar í náminu í Columbia
• Hvernig hugmyndin um Ada konur (@ada_konur) fæddist og þá spennandi tíma sem eru framundan í þróun miðilsins
• Hvað það er gefandi að kynna möguleika tækninnar fyrir yngri kynslóðum og sýna fyrirmyndir
• Hvað það er orkugefandi að fara á Crossfit æfingu og fara í sund þegar hún er á Íslandi en að aldrei skuli vanmeta slökun með ís og Netflix
Í þættinum minnist Helena á bók sem hún mælir með
AI 2041 eftir Kai-Fu Lee og Chen Qiufan
Sýn er styrktaraðili þáttarins
Fleiri þættir af Konur í tækni
- 31. Auður Ösp Ólafsdóttir, markaðsklappstýra5. desember 2024
- 30. Ásdís Eir Símonardóttir, driffjöður átaksverkefnis Vertonet og sjálfstætt starfandi ráðgjafi7. nóvember 2024
- 29. Valeria R. Alexandersdóttir, forstöðukona tækniþjónustu Ljósleiðarans13. október 2024
- Hvað er framundan hjá Vertonet?23. júní 2024
- 28. Joice Tae Ozaki, VP of Product at Controlant31. maí 2024
- 27. Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns, frumkvöðull og framkvæmdastjóri29. apríl 2024





