7. Anna Karlsdóttir, CQO hjá Controlant
Að þessu sinni er Anna Karlsdóttir gestur þáttarins. Anna er vélaverkfræðingur að mennt og starfar sem framkvæmdarstjóri gæðasviðs eða CQO hjá Controlant þar sem hún hefur starfað undanfarin 7 ár. Áður en hún hóf störf hjá Controlant hafði hún starfað hjá Marorku í 12 ár, síðast sem framkvæmdarstjóri tæknisviðs. Auk starfa sinna hjá Controlant situr Anna í stjórn Ankeri sem er hugbúnaðarfyrirtæki sem starfar á alþjóðlegum skipamarkaði.
Í þættinum ræða Hildur og Anna m.a. um:
Ástríðuna sem fylgir því að starfa hjá nýsköpunarfyrirtækjum og byggja upp frá grunni
Mikilvægi fjölbreytileika á vinnustöðum
Heiðurinn sem Anna fékk á dögunum þegar hún fékk verðlaun Supply & Demand Chain Executive Women in Supply Chain award
Hvað lestur bókmennta er nærandi og eykur víðsýni
Spennandi tíma sem eru framundan hjá Controlant
Þátturinn er í boði Geko – Specialists in Innovation Talent
Fleiri þættir af Konur í tækni
- 31. Auður Ösp Ólafsdóttir, markaðsklappstýra5. desember 2024
- 30. Ásdís Eir Símonardóttir, driffjöður átaksverkefnis Vertonet og sjálfstætt starfandi ráðgjafi7. nóvember 2024
- 29. Valeria R. Alexandersdóttir, forstöðukona tækniþjónustu Ljósleiðarans13. október 2024
- Hvað er framundan hjá Vertonet?23. júní 2024
- 28. Joice Tae Ozaki, VP of Product at Controlant31. maí 2024
- 27. Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns, frumkvöðull og framkvæmdastjóri29. apríl 2024





