Stækkun orkuvers í skugga jarðhræringa
Þann 1. desember var sjöundi áfangi Svartsengis, orkuvers HS Orku, tekinn í notkun og jókst þar með framleiðslugeta þess um þriðjung. Það er í sjálfu sér fréttnæmt að við bætist uppsett afl hér á landi, en í þessu tilfelli er það ekki síður vegna þess að orkuverið var stækkað á tímum jarðhræringa, eldgosa og mikillar óvissu. Stóðst framkvæmdin þó allar verk- og tímaáætlanir.
Rafn Magnús Jónsson yfirverkefnisstjóri HS Orku og Yngvi Guðmundsson yfirverkfræðingur HS Orku ræða við Lovísu Árnadóttur um þetta ótrúlega verkefni í þessum þætti Lífæða landsins.
Fleiri þættir af Lífæðar landsins
- Fyrsta vindorkuverið: Fólkið á bak við myllurnar21. október 2026
- Snjallir mælar -betri yfirsýn28. september 2026
- Undir yfirborðinu: Fráveita framtíðarinnar10. ágúst 2026
- Orkan í efnahagsljósi25. júní 2026
- Vestfirðir eru heitur reitur10. nóvember 2025
- Þétt alþjóðlegt tengslanet margborgar sig10. október 2025

