Lífæðar landsins er hlaðvarp Samorku um orku- og veitumál.

Hvað er eiginlega svona snjallt við snjallmæla og hvað breytist þegar hefðbundnum mælum er skipt út fyrir snjalla? Í þessum þætti Lífæða landsins ræðum við snjallmæla á mannamáli við Ingu Láru Jónsdóttur, framkvæmdastjóra þjónustu og snjallra lausna hjá HS Veitum, og Valtý Guðmundsson, deildarstjóra mælaumsýslu þar á bæ. Við förum yfir hvað snjallmælar eru og hvernig þeir virka, hvaða ávinningur felst í þeim fyrir heimili, fyrirtæki og veiturnar sjálfar og hvernig innleiðing þeirra gengur fyrir sig. Við ræðum líka hvernig snjallmælar geta hjálpað til við að greina bilanir og óeðlilega notkun, stuðlað að betri nýtingu auðlinda og hvaða möguleikar opnast þegar við höfum betri upplýsingar um notkun á auðlindunum okkar.

Fráveitutilskipun Evrópusambandsins mun hafa víðtæk áhrif á fráveitumál hér á landi og kalla á miklar framkvæmdir og fjárfestingar á komandi árum. Hvernig erum við í stakk búin til að takast á við þau verkefni? Í þættinum ræðir Hafdís Helga Helgadóttir við Aron Heiðar Steinsson, veitustjóri á Umhverfis- og framkvæmdasviði Reykjanesbæjar og Reynir Sævarsson, sem leiðir viðskiptaþróun og nýsköpun hjá EFLU, um stöðu fráveitumála á Íslandi, kröfur nýju tilskipunarinnar og þær áskoranir og tækifæri sem fram undan eru. Hvað þarf að gera, hvað mun það kosta og hvernig getum við nýtt nýsköpun til að byggja upp betri og sjálfbærari fráveituinnviði?

Orkumálin eru krufin í hagfræðilegu samhengi í þessum þætti Lífæða landsins. Jón Gunnarsson greinandi hjá Samorku og Friðjón Þórðarson framkvæmdastjóri Qair á Íslandi kafa ofan í þau mál með Hafdísi Helgu Helgadóttur, upplýsingafulltrúa Samorku.

Þann 1. desember var sjöundi áfangi Svartsengis, orkuvers HS Orku, tekinn í notkun og jókst þar með framleiðslugeta þess um þriðjung. Það er í sjálfu sér fréttnæmt að við bætist uppsett afl hér á landi, en í þessu tilfelli er það ekki síður vegna þess að orkuverið var stækkað á tímum jarðhræringa, eldgosa og mikillar óvissu. Stóðst framkvæmdin þó allar verk- og tímaáætlanir. Rafn Magnús Jónsson yfirverkefnisstjóri HS Orku og Yngvi Guðmundsson yfirverkfræðingur HS Orku ræða við Lovísu Árnadóttur um þetta ótrúlega verkefni í þessum þætti Lífæða landsins.

Vestfirðir eru heitur reitur
Á Vestfjörðum hefur verið notast við rafkyntar hitaveitur í stað hefðbundinna jarðhitaveitna, því lítið hefur fundist í gegnum tíðina af nægilega heitu vatni sem gæti nýst til húshitunar. En með tækniframförum og myndarlegu átakistjórnvalda í jarðhitaleit á svæðinu hefur vonin aldeilis kviknað um að þetta geti breyst, íbúm á svæðinu til mikilla hagsbóta. Elena Dís Víðisdóttir, verkfræðingur á orkusviði hjá OrkubúiVestfjarða, ræðir uppganginn og stemninguna á Vestfjörðum við Lovísu Árnadóttur og hvernig Vestfirðir eru að verða heitur reitur, líka hvað varðar jarðhita.

Öflugur hópur frá Íslandi, fulltrúar orkufyrirtækja, háskóla, verkfræðistofa og fleiri, sóttu Evrópsku jarðhitaráðstefnuna í Zurich frá 6. til 9. október sem EGEC – European Geothermal Energy Council skipulagði. Þessi góða þátttaka er til marks um forystuhlutverk Íslands í nýtingu jarðhita og margvíslega alþjóðlega samvinnu um rannsóknir, nýjungar og annað sem eflir þessa grænu orkulind. Sveinn Helgason sat ráðstefnuna fyrir hönd Samorku og talaði við nokkra úr íslenska hópnum fyrir Lífæðar landsins. Viðmælendur Sveins lögðu áherslu á gagnsemi þess að sækja alþjóðlega ráðstefnu af þessu tagi, til að kynna hvað þau og þeirra fyrirtæki og stofnanir eru að gera. Þau undirstrikuðu líka mikilvægi þess að byggja upp sterkt tengslanet þvert á landmæri sem skilar sér margfalt til baka.

Hreint vatn er ekki heppni
Mikilvægt er að standa vörð um neysluvatnið okkar því það er okkar mikilvægasta auðlind. Í nútímasamfélagi verður það sífellt flóknara verkefni. Hrefna Hallgrímsdóttir, forstöðumanneskja vatnsmiðla hjá Veitum, ræðir við Lovísu Árnadóttur um vatnsveituna á höfuðborgarsvæðinu og minnir okkur rækilega á að hreint vatn er ekki heppni. Þátturinn kemur út 2. október, en þann dag árið 1909 var vatnsleiðsla frá Gvendarbrunnum fyrst tekin í notkun og telst dagurinn upphafsdagur vatnsveitu í Reykjavík.

Orkuskipti og aukin eftirspurn eftir raforku kallar á mikla samvinnu í uppbyggingu raforkuinnviða. Kerfisáætlun Landnets hefur það hlutverk að áætla hvar og hvenær nýjar línur verða byggðar upp eða styrktar og þannig tryggja öruggan flutning raforku á milli landshluta. En uppbyggingin er umfangsmikil og mikilvægt að forgangsraða þeim verkefnum sem skila mestum ávinningi. Í þættinum fara þær Arngunnur Einarsdóttir sérfræðingur í viðskiptaþróun hjá Landsneti og Guðrún Margrét Jónsdóttir sérfræðingur í kerfisþróun hjá Landsneti yfir hvernig sú forgangsröðun verður til og mikilvægi samráðsvettvangsins sem kerfisáætlun er.

Að bora djúpt ofan í jarðlögin til að ná í orku er eitthvð sem unnið hefur verið að árum saman hér á landi. Með þessu væri hægt að ná í meiri orku á sömu jarðhitasvæðum og þannig nýta jarðhitaauðlindina enn betur. En það fylgja því tæknilegar áskoranir að ætla sér að bora svona djúpt ofan í jörðina. Í þættinum ræðir Sigurður H. Markússon, leiðtogi djúpnýtingar hjá Orkuveitunni, um djúpborunarverkefnin hér á landi og hvernig árangur í þeim efnum getur skipt sköpum, ekki aðeins fyrir Íslendinga heldur á alþjóðavísu.

Vaðölduver verður til
Hingað til hafa jarðvarmi og vatnsafl verið meginuppsprettur raforkuframleiðslu á Íslandi. Nú er breyting fram undan, því Vaðölduver Landsvirkjunar – fyrsta vindorkuver landsins – er komið á framkvæmda- eða rekstrarstig. Að mörgu er að huga þegar hafist er handa við að byggja eitthvað alveg nýtt og í þættinum fáum við að heyra meira um ferlið, undirbúning og upphaf framkvæmda, auk þess sem hægt er að sjá hvernig Vaðölduver kemur til með að líta út. Gestur þáttarins er Sigurgeir Björn Geirsson, yfirverkefnisstjóri Vaðölduvers hjá Landsvirkjun. Umsjón þáttarins er í höndum Lovísu Árnadóttur, upplýsingafulltrúa Samorku.


