Snjallir mælar -betri yfirsýn

· Landið, Tækni

Hvað er eiginlega svona snjallt við snjallmæla og hvað breytist þegar hefðbundnum mælum er skipt út fyrir snjalla?
Í þessum þætti Lífæða landsins ræðum við snjallmæla á mannamáli við Ingu Láru Jónsdóttur, framkvæmdastjóra þjónustu og snjallra lausna hjá HS Veitum, og Valtý Guðmundsson, deildarstjóra mælaumsýslu þar á bæ.
Við förum yfir hvað snjallmælar eru og hvernig þeir virka, hvaða ávinningur felst í þeim fyrir heimili, fyrirtæki og veiturnar sjálfar og hvernig innleiðing þeirra gengur fyrir sig. Við ræðum líka hvernig snjallmælar geta hjálpað til við að greina bilanir og óeðlilega notkun, stuðlað að betri nýtingu auðlinda og hvaða möguleikar opnast þegar við höfum betri upplýsingar um notkun á auðlindunum okkar.

Lífæðar landsins

Úr hlaðvarpinu

Lífæðar landsins

Samorka

Allir þættir

Fleiri þættir af Lífæðar landsins