#21 Hildur Grímsdóttir
TW
Þáttur dagsins krefst þess að við setjum Trigger Warning við en Hildur fer yfir allar 5 fæðingarnar sínar, þar á meðal andvana fæðingu sonar síns Hergeirs Þórs sem fæddist eftir 25 vikna meðgöngu.
Hildur lýsir á einlægan hátt erfiðri, sárri en jafnframt fallegri reynslu þegar Hergeir Þór kom í mömmufang. Ef þú treystir þér til mælum við eindregið með að hlusta á þessa fallegu fæðingu og fund yndislegs lítils drengs við mömmu og pabba.
Að auki á Hildur 4 skemmtilegar upplifanir af fæðingum sem allar eiga sameiginlegt að byrja með keimlíkum hætti.
Mannleg, skemmtileg, einlæg og hress, það er Hildur Gríms sem deilir með okkur fæðingum og fleiru í þætti dagsins.
Fleiri þættir af Ljósmæðrarýmið
- 27. Hlutir "Worth the money" fyrir fæðingu og sængurlegu1. október 2026
- #26 Fæðingarsögur: Gangsetning, heimafæðing og tvíburar3. september 2026
- #25 Sigríður - Má hafa gaman í fæðingunni sinni?27. ágúst 2026
- #24 Fæðingarplan, er það sniðugt?21. ágúst 2026
- #23 Alexandra - Tvær heimafæðingar13. ágúst 2026
- #22 Mænurótardeyfing - allt sem þú þarft að vita7. ágúst 2026
