Tvær ljósmæður skapa öruggt rými fyrir hrátt spjall um allt sem við kemur fæðingum og fá til sín gesti til að deila sínum fjölbreyttu fæðingarsögum. Rauði þráðurinn er jákvæð upplifun af fæðingu. Okkur finnst að það megi heyrast meira í þeim! Við trúm því að þessar umræður geti styrkt konur í undirbúningi fyrir sína eigin fæðingu ❤️

#24 Fæðingarplan, er það sniðugt?
Þetta getur verið hot topic hvort þú eigir að gera fæðingarplan eða leyfa þér bara að go with the flow…? Við kryfjum þetta til mergjar í þætti vikunnar þangað til þetta er orðið kýrskýrt. Linkur á myndband um öndun í fæðingu: https://www.sofabordaelska.is/ondun Vertu með okkur á Instagram: Ljósmæðrarýmið Sofa borða elska Oddný ljósmóðir

#23 Alexandra - Tvær heimafæðingar
Elsku Alexandra, þroskaþjálfi og mikill snillingur, kom til okkar í svo skemmtilegt spjall um sínar tvær ólíku heimafæðingar. Hvað varð til þess að hún valdi heimafæðingu? Hvernig gengu þær fyrir sig? Áður en hún varð ólétt af fyrsta barni var hún frekar hrædd við að fæða, en eftir að hún áttaði sig á því að hún hefði val um hvar og hvernig hún fæddi barnið sitt, byrjaði hún að vera spennt fyrir fæðingunni. Hún átti góða upplifun þrátt fyrir krefjandi lokakafla í fyrri fæðingu, sem endurtók sig heldur betur ekki í seinni fæðingunni. Njótið vel 🤎 Vertu með okkur á Instagram: Ljósmæðrarýmið Sofa borða elska Oddný ljósmóðir

#22 Mænurótardeyfing - allt sem þú þarft að vita
Mænudeyfing, mænurótardeyfing, utanbastdeyfing eða hvað sem þú vilt kalla hana, hér kemur góð umfjöllun um kosti, galla, fylgikvilla og verkun deyfinga í fæðingum á Íslandi. Hvenær er best að fá sér deyfingu?Hvað breytist þegar ég fæ mér deyfingu?Og margt margt fleira.Og ekki hafa neinar áhyggjur, að sjálfsögðu tölum við um kúk og piss líka og hlæjum mikið mikið af sjálfum okkur í leiðinni. Allt sem ÞÚ þarft að vita til að taka upplýsta ákvörðun fyrir þig og þína fæðingu! Vertu með okkur á Instagram: Ljósmæðrarýmið Sofa borða elska Oddný ljósmóðir

#21 Hildur Grímsdóttir
TW Þáttur dagsins krefst þess að við setjum Trigger Warning við en Hildur fer yfir allar 5 fæðingarnar sínar, þar á meðal andvana fæðingu sonar síns Hergeirs Þórs sem fæddist eftir 25 vikna meðgöngu. Hildur lýsir á einlægan hátt erfiðri, sárri en jafnframt fallegri reynslu þegar Hergeir Þór kom í mömmufang. Ef þú treystir þér til mælum við eindregið með að hlusta á þessa fallegu fæðingu og fund yndislegs lítils drengs við mömmu og pabba. Að auki á Hildur 4 skemmtilegar upplifanir af fæðingum sem allar eiga sameiginlegt að byrja með keimlíkum hætti. Mannleg, skemmtileg, einlæg og hress, það er Hildur Gríms sem deilir með okkur fæðingum og fleiru í þætti dagsins.

#20 Arna Ýr
Arna Ýr, íþróttakona, fyrirtækjaeigandi, fyrrverandi fegurðardrottning og almennur brasari og fiðrildi eins og hún lýsir sjálf segir frá öllum fæðingunum sínum í löngu og skemmtilegu máli. Allar 3 er ólíkar en þó með sameiginlegum rauðum þræði, S E I G L A. Arna er mögnuð kona og það er heiður að fá að hlusta á hana segja frá fæðingunum sínum, hún er hreinskilin opin og hrá í þessum þætti. Getur hver sem er leyft sér að stefna að upplifunum eins og Örnu, fæðing utan sjúkrahúss með fyrsta barn, bað fæðingar og auðvitað blómafæðingarlaugin fræga? Er það óraunhæft eða á færi allra með góðum undirbúningi að eiga góða fæðingarupplifun? Ræðum þetta og margt fleira í þætti dagsins

#19 Foreldrajátningar
Hefur þú gleymt að þú varst að keyra um með ungabarn í aftursætinu? Engar áhyggjur, það höfum við líka gert, og flestir hlustendur okkar líka! Endilega skelltu þessum í eyrun ef þú vilt eyða foreldra samviskubiti dagsins, enda erum við flest í sama rugli.

#18 Fæðingarsögur Dýrleifar - Hvernig áföll geta haft áhrif á fæðingarferlið
Í þessum einstaka þætti segir Dýrleif okkur af svo mikilli einlægni og innsýn frá sínar tveimur ólíku fæðingum og hvernig það var að vera sjálf ljósmóðir þegar kom að því að fæða. Dýrleif deilir líka reynslu sinni af því hvernig áföll úr fortíðinni komu óvænt upp á yfirborðið í fyrri fæðingunni og hvað hún gerði til að geta átt ánægjulega seinni fæðingu. Þetta er þáttur sem við höfum beðið spenntar eftir að taka upp og við vonum að sagan hennar Dýrleifar geti veitt ykkur innblástur. Njótið vel 🤎 Vertu með okkur á Instagram: Ljósmæðrarýmið Sofa borða elska Oddný ljósmóðir

#17 TW: Missir snemma á meðgöngu, reynslusaga Oddnýjar
Missir snemma á meðgöngu er mun algengari en flestir gera sér grein fyrir. Samt upplifa margar konur sig einar í þessari reynslu og sorginni sem fylgir. Í þessum einlæga þætti deilir Oddný, annar þáttastjórnanda Ljósmæðrarýmisins, sinni eigin reynslu af missi á 12. viku meðgöngu. Hún segir frá fyrstu einkennunum, greiningunni, lyfjameðferðinni, líkamlega ferlinu við missinn og þeim bjargráðum sem hún nýtti í þeim aðstæðum. Við ræðum einnig sorgarferlið sem fylgir því að missa barn snemma á meðgöngu. Þegar þú þarft að kveðja litla krílið þitt og þá framtíð sem þú varst búin að sjá fyrir þér og plana lífið í kringum. Þessi þáttur er fyrir þig ef þú hefur upplifað fósturlát, misst snemma á meðgöngu, ert að ganga í gegnum missi núna eða vilt skilja betur reynslu þeirra sem hafa þurft að kveðja litla krílið sitt snemma á meðgöngu. Vertu með okkur á Instagram: Ljósmæðrarýmið Sofa borða elska Oddný ljósmóðir

#16 Fæðingarsögur Írisar Rutar sem upplifði allar þrjár tegundir keisara
Íris Rut þriggja barna móðir í úthverfi, kennari og fellihýsa áhugakona, segir okkur frá keisarafæðingunum sínum. Hún fór í gegnum allar 3 tegundir keisara, bjöllu, bráða og skipulagðan. Hún fer vel yfir hvernig fæðingarnar hófust og hvað varð til þess að fæðingarnar hennar voru keisarafæðingar, dregur upp fallega mynd af því þegar keisarar eru besta mögulega útkoman fyrir konu og barn þegar þörf er á. Hún ræðir upplifun sína af fæðingunum, andrúmsloftinu á skurðstofunni og aumingja manninn sinn sem var bitinn í magann, af henni. Vertu með okkur á Instagram: Ljósmæðrarýmið Sofa borða elska Oddný ljósmóðir

#15 Hvar vorum við og hvert erum við að fara?
Við erum mættar aftur eftir stutta pásu! Ferskari en nokkru sinni fyrr. Hvert fórum við? Hvert erum við að fara með hlaðvarpið? Pælingar: Af hverju heyrum við og sjáum lang mest af hryllingssögum um fæðingu en sjaldan góðu sögurnar? Af hverju ákváðum við að synda svolítið gegn straumnum og skapa vettvang fyrir jákvæðar fæðingarupplifanir? 🎧 Njóttu vel! Vertu með okkur á Instagram: Ljósmæðrarýmið Sofa borða elska Oddný ljósmóðir


