111. Öndun er mitt hjartans mál. (Streita, öndunaræfingar, ferðalöngun, ADHD, að eiga barn í óreglu og meðvirkni). Lilja Steingrímsdóttir
Í þætti vikunnar ræðir Erla við Lilju Steingrímsdóttur, hjúkrunarfræðing og öndunarkennara um streitu, gagnsemi öndunaræfinga, mikla ferðalöngun, ADHD, að eiga barn í óreglu, meðvirkni og að snúa neikvæðum hlutum upp í jákvæða.
Lilja sem hefur starfað sem hjúkrunarfræðingur í 44 ár segir öndun hafa bjargað lífi sínu og geðheilsu þegar hún skildi, flutti og fékk nýja vinnu allt á sama tíma. Hún kynntist þá óvænt öndunaræfingum sem hún gerði daglega í 9 ár og stundar enn 20 árum seinna.
Lilja þurfti að taka þá erfiðu ákvörðun að flytja frá sonum sínum þegar þeir voru aðeins 11 og 14 ára gamlir en eina leiðin til að klippa á andlegt ofbeldi fyrrum maka, var að fara nógu langt í burtu.
Næsta Öndunar námskeið hjá Art of Living/IAHV verður 17.-19. apríl. Kennt er af Lilju í Grundargerði 7. Verð fyrir 42.000 fyrir vinnandi en 32.000 fyrir alla aðra og verkalýðsfélög taka venjulega þátt.
Nánari upplýsingar má finna á: www.artofliving.org, www.IAHV.org og áhugasamir geta haft samband við Lilju í síma +354 6928302 eða sent henni tölvupóst hjartanslist@yahoo.com.
Samstarfsaðilar hlaðvarpsins eru:
💙 -HEILSUHILLAN. Hefur þú prófað GUM Soft Picks PRO?
🌱 -SPÍRAN. Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu?
🐘 -VIRKJA. Ertu á krossgötum? Prófaðu tíma í markþjálfun.
💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar.
💦 -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf.
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Fleiri þættir af Með lífið í lúkunum
- 128. Hvernig fjölgum við heilbrigðum æviárum? Kristján Þór Gunnarsson25. september 2026
- 127. Að virða ekki eigin mörk endar með kulnun. (Kærleikur, umhverfisvernd, hormónaraskandi efni og meðvitund). Heiðrún Birna Rúnarsdóttir.12. september 2026
- Kvennakvöld HeilsuErlu (Heilsumoli 49)10. september 2026
- Sterkur september- heilsuáskorun (Heilsumoli 48)5. september 2026
- 126. Að treysta líkamanum aftur. (Saga um meiðsli, mótlæti, seiglu og sjálfsmynd). Sara Sigmundsdóttir30. ágúst 2026
- 125. Fordómar þrífast í þögninni. (Fíkn, jaðarsetning, meðvirkni, viðhorfsbreyting, meðvitund og von). Hlynur Kristinn Rúnarsson16. ágúst 2026






