Sterkur september- heilsuáskorun (Heilsumoli 48)
Langar þig að koma þér aftur í þínar góðu venjur eftir sumarfrí og þarft smá aðhald?
Taktu þátt í Sterkum september og nærðu þig andlega, líkamlega og félagslega
sterkur líkami 💪🏻
sterkur hugur 🧠
sterk næring 🌱
sterk tengsl 🫶
= Sterk heild!
Taktu þátt! Þetta er afar auðvelt.
Hér er hlekkur á sniðmátið af áskoruninni.
Prentaðu út blaðið
Skrifaðu inn þær venjur sem þig langar að tileinka þér í september. (1-10 venjur)
Merktu við daglega.
Þetta snýst ekki um fullkomnun, bara að gera sitt besta og hafa gaman.
✨ Settu 10.október í dagatalið! ✨
Kvennakvöld HeilsuErlu á Spírunni. Það verður ekkert venjulegt kvöld…því get ég lofað. 😉 Hlátur. Fræðsla. Tónlist. Matur. Stemmning.
Hin eina sanna Edda Björgvins, Beta Reynis og Halldóra Skúla verða með fræðslu og Hrund Scheving hjá Sche Events sér um að halda uppi stuðinu. Aðeins 100 miðar í boði. Allar nánari upplýsingar verða birtar á @heilsuerla
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Fleiri þættir af Með lífið í lúkunum
- 132. Hvernig greinum við innsæi frá ótta? (Sársauki, sjálfsþekking, athygli, dómgreind og hegðun). Hrund Gunnsteinsdóttir20. nóvember 2026
- 131. Skömmin var aldrei mín. (Áföll, fíkn, meðvirkni, meðvitund, hugrekki og sjálfsvinna). Hrund Ottósdóttir7. nóvember 2026
- 130. Dugnaður drepur. (Heilsuorlof, ofurkonan, mygla og leitin að heilsunni). Guðrún Hafþórs23. október 2026
- Eru skjáir að ræna okkur félagslegum töfrum? Viðar Halldórsson (Heilsumoli 50)15. október 2026
- 129. Þú getur ekki hafnað þér til heilsu. Guðni Gunnarsson9. október 2026
- 128. Hvernig fjölgum við heilbrigðum æviárum? Kristján Þór Gunnarsson25. september 2026






