Sagan og maðurinn á bakvið Spíruna. (Heilsumoli 19)
Á næstu vikum mun ég kynna dygga samstarfsaðila hlaðvarpsins með stuttum Heilsumolum í hlaðvarpinu. Næsti samstarfsaðili sem ég kynni til leiks er Spíran.
Sumarsalat HeilsuErlu er nú komið á matseðil Spírunnar og ekkert ykkar ætti að láta það fram hjá ykkur fara!
Spíran er dásamlegur veitingastaður staðsettur í Garðheimum við Álfabakka 6 í Reykjavík. Hann er fjölskylduvænn bistró-staður sem leggur áherslu á hollan og góðan mat, gerðan frá grunni úr gæða hráefnum og lagaður af mikilli ást.
Opið er alla virka daga frá kl.11 til 20 og um helgar frá kl. 11 til 17.
Þú getur valið þér einn af réttum dagsins kjöt, fiskur og grænmetisréttur í hádeginu (11-14) eða á kvöldin (17-20) og fylgir súpa dagsins með ásamt uppáhelltu kaffi ef borðað er á staðnum.
Matseðillinn er breytilegur sem þýðir að það er alltaf eitthvað nýtt og ferskt í matinn á hverjum degi. Einnig býður Spíran upp á vöfflur, kökur og ýmislegt bakkelsi sem er lagað á staðnum.
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Fleiri þættir af Með lífið í lúkunum
- 128. Hvernig fjölgum við heilbrigðum æviárum? Kristján Þór Gunnarsson25. september 2026
- 127. Að virða ekki eigin mörk endar með kulnun. (Kærleikur, umhverfisvernd, hormónaraskandi efni og meðvitund). Heiðrún Birna Rúnarsdóttir.12. september 2026
- Kvennakvöld HeilsuErlu (Heilsumoli 49)10. september 2026
- Sterkur september- heilsuáskorun (Heilsumoli 48)5. september 2026
- 126. Að treysta líkamanum aftur. (Saga um meiðsli, mótlæti, seiglu og sjálfsmynd). Sara Sigmundsdóttir30. ágúst 2026
- 125. Fordómar þrífast í þögninni. (Fíkn, jaðarsetning, meðvirkni, viðhorfsbreyting, meðvitund og von). Hlynur Kristinn Rúnarsson16. ágúst 2026






