36. Hættu að heyra og byrjaðu að hlusta. (Markþjálfun, eldurinn innra með okkur, sjálfsvirðing og innsæi). Laufey Haraldsdóttir
Þátturinn er gerður í samstarfi við Nettó. Nýtið ykkur 25% appslátt af öllum vörum frá Änglamark til 10.mars þegar þið verslið í appinu.
Í þættinum ræðir Erla við Laufeyju Haraldsdóttur um markþjálfun, hvernig við kveikjum í eldinum innra með okkur, hvernig við tengjumst okkur sjálfum betur, sjálfsvirðingu, innsæi og hvernig við hættum að heyra og byrjum að hlusta.
Laufey er stofnandi og framkvæmdarstjóri Virkja og er með PCC gæða vottun frá ICF í markþjálfun. Hún elskar að kenna markþjálfun og brennur fyrir að hjálpa einstaklingum og fyrirtækjum að vaxa og þróast og elskar að virkja töfrana hjá öðrum og sjá þá birtast í líðan þeirra. Gildi Virkja eru fagmenska, alúð og dýpt
Laufey er með afar fallega sýn á lífið. Faðir hennar lést 67 ára, þegar hann ætlaði loksins að fara að njóta lífsins. Þetta var henni erfitt en leiddi þó til jákvæðra breytinga því að Laufey leit á það sem gjöf að fá þessa áminningu. Hún ákvað að byrja sína vegferð að hlusta á innsæið og hjartað.
Laufey bendir á það að við þurfum að líta inn á við og tengjast okkur sjálfum betur og velja okkar eigin framtíð. Markþjálfun er tól til þess að komast þaðan sem við erum, þangað sem okkur langar að komast. Hlutverk markþjálfa er að aðstoða fólk við að vita hvað þau vilja og tengjast svörunum sínum.
Laufey mælir með að þú spyrjir þig reglulega spurninga eins og hvernig líður mér? og langar mig að líða svona?
Áhugasamir geta fylgt Laufeyju og Virkja á Instagram
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Fleiri þættir af Með lífið í lúkunum
- 128. Hvernig fjölgum við heilbrigðum æviárum? Kristján Þór Gunnarsson25. september 2026
- 127. Að virða ekki eigin mörk endar með kulnun. (Kærleikur, umhverfisvernd, hormónaraskandi efni og meðvitund). Heiðrún Birna Rúnarsdóttir.12. september 2026
- Kvennakvöld HeilsuErlu (Heilsumoli 49)10. september 2026
- Sterkur september- heilsuáskorun (Heilsumoli 48)5. september 2026
- 126. Að treysta líkamanum aftur. (Saga um meiðsli, mótlæti, seiglu og sjálfsmynd). Sara Sigmundsdóttir30. ágúst 2026
- 125. Fordómar þrífast í þögninni. (Fíkn, jaðarsetning, meðvirkni, viðhorfsbreyting, meðvitund og von). Hlynur Kristinn Rúnarsson16. ágúst 2026






