Langar þig að bæta heilsuna en veist ekki hvar þú átt að byrja? Þjónusta í boði. (Heilsumoli 8)
Langar þig að bæta heilsuna en veist ekki alveg hvar þú átt að byrja eða vantar þig bara smá spark í rassinn til þess að komast af stað í átt að betri heilsu? Þá er heilsumarkþjálfun eitthvað fyrir þig.
HeilsuErla býður upp á einkatíma, fyrirlestra&ráðgjöf á vinnustöðum og skemmtilega vinnustofu.
Heilsumarkþjálfun- einkatími
Markmiðasetning- heilsan í fyrsta sæti. 60 mínútna tími þar sem við setjum í sameiningu heilsutengd markmið, bæði skammtíma og langtíma markmið. Ég býð upp á Heilsumarkþjálfun í Sjúkraþjálfuninni í Sporthúsinu á miðvikudögum. Hægt er að bóka tíma með því að hringja í 564-4067 eða senda tölvupóst á sjukrathjalfunin@sporthusid.is.
Fyrirlestrar- Með lífið í lúkunum
Í boði eru fyrirlestrar um ýmis heilsutengd málefni á borð við svefn, hreyfingu, næringu, öndun, streitu, markmiðasetningu og margt fleira. Hægt er að óska eftir fyrirlestrum um ákveðið efni eða allan pakkann.
Ráðgjöf- Leggðu daglega inn í heilsubankann. Hægt er að óska eftir hópráðgjöf um heildræna heilsu, hvernig auka má lífsgæði með breyttum lífsstílsvenjum og hvernig á að setja sér raunhæf markmið að langvarandi árangri og bættri heilsu.
Vinnustofur- Heilsutengd markmiðasetning
Skemmtilegur valkostur. Fræðsla, verkefni og umræður. Stuttur fyrirlestur og verkefnavinna þar sem gerð eru heilsutengd verkefni sem miða að því kenna þátttakendum hagnýta færni og hugmyndir til þess að bera ábyrgð á og bæta eigin heilsu. Góð byrjun á þínu heilsuferðalagi.
ATH! næsta vinnustofa verður 22.febrúar. Nánari upplýsingar og skráning hér: https://forms.gle/ftd87EbnjRvui5cLA
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Fleiri þættir af Með lífið í lúkunum
- 128. Hvernig fjölgum við heilbrigðum æviárum? Kristján Þór Gunnarsson25. september 2026
- 127. Að virða ekki eigin mörk endar með kulnun. (Kærleikur, umhverfisvernd, hormónaraskandi efni og meðvitund). Heiðrún Birna Rúnarsdóttir.12. september 2026
- Kvennakvöld HeilsuErlu (Heilsumoli 49)10. september 2026
- Sterkur september- heilsuáskorun (Heilsumoli 48)5. september 2026
- 126. Að treysta líkamanum aftur. (Saga um meiðsli, mótlæti, seiglu og sjálfsmynd). Sara Sigmundsdóttir30. ágúst 2026
- 125. Fordómar þrífast í þögninni. (Fíkn, jaðarsetning, meðvirkni, viðhorfsbreyting, meðvitund og von). Hlynur Kristinn Rúnarsson16. ágúst 2026






