27. Hvernig lifum við innihaldsríku og góðu lífi? (Tilfinningar, tilgangur, hamingja og gervigreind). Bergsveinn Ólafsson
Þátturinn vikunnar er gerður í samstarfi við Spíruna. Spíran er fjölskylduvænn Bistro staður í Garðheimum þar sem þú færð heiðarlegan, hollan og góðan mat lagaðann af ást og alúð. Fylgið Spírunni á Instagram.
Í þættinum ræðir Erla við Bergsvein ÓIafsson, sem flestir þekkja sem Begga Ólafs um heilsu, innihaldsríkt líf, tilfinningar, tilgang, hamingju, gervigreind, hvernig við getum haft jákvæð áhrif á aðra bæði nákomna og ókunnuga og margt fleira.
Um er að ræða einlægt spjall um það hvernig Beggi er orðinn hálfgerður Kana-Íslendingur, hvernig hann er ekki með allt á hreinu og hvernig hann hefur stundum ,,prjónað" yfir sig með því að prófa nýjar leiðir til að bæta heilsu sína. Hann segist vera ábyrgur fyrir því sem í honum býr og að það sé bæði blessun og bölvun að það sé stanslaust kveikt á hausnum.
Beggi er í doktorsnámi í sálfræði í Kalíforníu. Hann brennur fyrir það að hjálpa fólki að upplifa innihaldsríkt og gott líf og er um þessar mundir að hanna hugbúnað sem hjálpar fólki að meta og bæta sína vellíðan.
Hann segir sinn tilgang vera að nota þjálfunarsálfræðina og hagnýtu jákvæðu sálfræðina til þess að hjálpa fólki að vaxa persónulega, faglega og félagslega svo að heimurinn verði að betri stað.
Áhugasamir geta fylgt Begga á Instagram
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Fleiri þættir af Með lífið í lúkunum
- 128. Hvernig fjölgum við heilbrigðum æviárum? Kristján Þór Gunnarsson25. september 2026
- 127. Að virða ekki eigin mörk endar með kulnun. (Kærleikur, umhverfisvernd, hormónaraskandi efni og meðvitund). Heiðrún Birna Rúnarsdóttir.12. september 2026
- Kvennakvöld HeilsuErlu (Heilsumoli 49)10. september 2026
- Sterkur september- heilsuáskorun (Heilsumoli 48)5. september 2026
- 126. Að treysta líkamanum aftur. (Saga um meiðsli, mótlæti, seiglu og sjálfsmynd). Sara Sigmundsdóttir30. ágúst 2026
- 125. Fordómar þrífast í þögninni. (Fíkn, jaðarsetning, meðvirkni, viðhorfsbreyting, meðvitund og von). Hlynur Kristinn Rúnarsson16. ágúst 2026






