24. Lífið er fallegt. (Barátta við fíkn, samskipti, sjálfstal, þrautsegja og sjálfsvinna). Davíð Tómas Tómasson
Í þættinum ræðir Erla við Davíð Tómas Tómasson, aka Dabba T, einn fremsta körfuknattleiksdómara landsins, fyrrum bootcamp þjálfara, tónlistarmann og fyrirlesara um samskipti, sjálfstal, þrautsegju, erfiða æsku, sjálfsvinnu og hvernig hann hefur alla ævi verið að vinna að því að fylla ,,tóm" innra með sér.
Davíð er þekktur fyrir það að fara ,,all-in" í það sem hann tekur sér fyrir hendur og mögulega er það ein af stóru ástæðunum fyrir því að honum tókst fyrir 11 árum síðan að snúa við blaðinu eftir margra ára baráttu við fíkn og vanlíðan.
Með þessu langa og krefjandi ferðalagi hefur Davíð stökkbreytt lífi sínu og eitthvað sem hann óraði ekki fyrir að gæti verið hluti af lífinu eru í dag orðin að markmiðum hans. Hann er þakklátur fyrir lífið og alla þá sem hafa aðstoðað hann á sinni vegferð en hann er sérstaklega þakklátur fyrir eigin eljusemi og metnað og þorsta og löngun til þess að skara framúr og gera betur. Því það er það sem hefur raunverulega komið honum þangað sem hann er kominn í dag.
Fyrir Davíð er heilsa það að taka fleiri réttar ákvarðanir en rangar á hverjum degi. Hann segir að það að ná alheilsu sé æviverk og að lífið sé ótrúlega fallegt, stórt og gott.
Áhugasamir geta fylgt Davíð á Instagram og davidtomas.is
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Fleiri þættir af Með lífið í lúkunum
- 128. Hvernig fjölgum við heilbrigðum æviárum? Kristján Þór Gunnarsson25. september 2026
- 127. Að virða ekki eigin mörk endar með kulnun. (Kærleikur, umhverfisvernd, hormónaraskandi efni og meðvitund). Heiðrún Birna Rúnarsdóttir.12. september 2026
- Kvennakvöld HeilsuErlu (Heilsumoli 49)10. september 2026
- Sterkur september- heilsuáskorun (Heilsumoli 48)5. september 2026
- 126. Að treysta líkamanum aftur. (Saga um meiðsli, mótlæti, seiglu og sjálfsmynd). Sara Sigmundsdóttir30. ágúst 2026
- 125. Fordómar þrífast í þögninni. (Fíkn, jaðarsetning, meðvirkni, viðhorfsbreyting, meðvitund og von). Hlynur Kristinn Rúnarsson16. ágúst 2026






