23. Glaðari þú. (Sjóböð, kuldaþjálfun, föstur, blóðsykur, homopatía, sjáfsmildi og tarot). Guðrún Tinna Thorlacius og Margrét Leifsdóttir
Gestir þáttarins eru þær stöllur og vinkonur Margrét Leifsdóttir arkítekt og heilsumarkþjálfi og Guðrún Tinna Thorlacius þroskaþjálfi, markþjálfi, homopati og fleira.
Þær fara um víðan völl í þessu áhugaverða spjalli og ræða meðal annars um ávinning sjóbaða, kuldaþjálfun, föstur, blóðsykur, homopatíu, sjáfsmildi, tarot og mikilvægi góðrar heilsu.
Sjóðbaðsleikjanámskeiðin þeirra Glaðari þú eru gífurlega vinsæl og næsta námskeið hefst 5.desember 2023. Hugmyndafræði þeirra snýst um að stunda sjóböð í mildi, með leikgleði að leiðarljósi.
Guðrún Tinna hefur brennandi áhuga á heilsueflingu, að efla fólk til betra lífs og að finna leiðir til að að sækja fram og upplifa meira á heilnæman og náttúrulegan hátt. Á heimasíðunni Náttúrulega.is má finna vörur, námskeið, eflandi heilsu- og dekurferðir, samtöl og ráðgjöf fyrir einstaklinga eða hópa, hópefli og vinnustaða sjóbaðsfjör.
Margrét brennur fyrir heilsu og markmið hennar er að aðstoða aðra við að breyta hugarfari sínu svolítið, vera svolítið betri við sjálfan sig, borða svolítið hollari og bjartari mat og lifa til langtíma mun betra lífi. Á Facebook síðu Margrétar má lesa nánar um hennar frábæru námskeið og vinnustofur.
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Fleiri þættir af Með lífið í lúkunum
- 128. Hvernig fjölgum við heilbrigðum æviárum? Kristján Þór Gunnarsson25. september 2026
- 127. Að virða ekki eigin mörk endar með kulnun. (Kærleikur, umhverfisvernd, hormónaraskandi efni og meðvitund). Heiðrún Birna Rúnarsdóttir.12. september 2026
- Kvennakvöld HeilsuErlu (Heilsumoli 49)10. september 2026
- Sterkur september- heilsuáskorun (Heilsumoli 48)5. september 2026
- 126. Að treysta líkamanum aftur. (Saga um meiðsli, mótlæti, seiglu og sjálfsmynd). Sara Sigmundsdóttir30. ágúst 2026
- 125. Fordómar þrífast í þögninni. (Fíkn, jaðarsetning, meðvirkni, viðhorfsbreyting, meðvitund og von). Hlynur Kristinn Rúnarsson16. ágúst 2026






