18. Að hlusta á líkamann. (Heilbrigði, hreyfigeta, verkjalosun, hamingja og lífsgæði.) Margrét Arna Arnardóttir

· Heilsa, Menntun

Í þessum áhugaverða þætti ræðir Erla við Margréti Örnu Arnardóttur, íþróttafræðing, jógakennara, heilara og meðferðaraðila um um jóga, heilun og bandvefslosun og hvað það er miklvægt að tengjast sjálfum sér og hlusta á innsæið og líkamann. Ástríða Margrétar Örnu er að hjálpa öðrum að finna sína eigin verðleika og gleði í lífinu þannig að hver einstaklingur geti orðið besta útgáfan af sjálfum sér.
Einkunnarorð hennar eru heilbrigði, hreyfigeta, verkjalosun, hamingja og lífsgæði.
Margrét Arna hefur starfað við þjálfun, kennslu og meðferðir frá 1996. Hún býður upp á einstaklings meðferðir og hóptíma þar sem áherslan er á að vinna með líkamanum í að laga sig sjálfur.​ Aðaláherslan er að stuðla að heilbrigði á sál og líkama með aukinni hreyfigetu og minni verkjum. Útkoman eru bætt lífsgæði og meiri hamingja.
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Margrétar Örnu og Instagram

Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

Með lífið í lúkunum

Úr hlaðvarpinu

Með lífið í lúkunum

HeilsuErla

Allir þættir

Fleiri þættir af Með lífið í lúkunum