17. Mikilvægasta ,,like-ið" er þitt eigið. (Seigla, þrautseigja, munur á milli kynslóða, kvíði og streita.) Anna Steinsen
Í þessum bráðskemmtilega þætti ræðir Erla við Önnu Steinsen, fyrirlesara, stjórnendamarkþjálfa, heilsumarkþjálfa og jógakennara um heilsu, seiglu, þrautseigju, mun milli kynslóða, kvíða, streitu og margt fleira. Anna er mikill húmoristi og þeir sem þekkja Önnu vita að þar sem hún er, er aldrei leiðinlegt. Þið verðið ekki svikin af þessari hlustun.
Anna er einn af stofnendum og eigendum Kvan og hefur sérhæft sig í þjálfun á námskeiðum fyrir ungt fólk. Hún er einn af vinsælustu fyrirlesurum landsins og flytur hún að jafnaði 150-200 fyrirlestra á hverju ári.
Anna er með BA gráðu í tómstunda- og félagsmálafræði og hefur hlotið alþjóðlegar viðurkenningar fyrir hæfni sína í þjálfun einstaklinga og starfsfólks fyrirtækja. Hún hefur einnig unnið til fjölda verðlauna sem þjálfari á alþjóðavettvangi og gefið út tvær barnabækur.
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Fleiri þættir af Með lífið í lúkunum
- 128. Hvernig fjölgum við heilbrigðum æviárum? Kristján Þór Gunnarsson25. september 2026
- 127. Að virða ekki eigin mörk endar með kulnun. (Kærleikur, umhverfisvernd, hormónaraskandi efni og meðvitund). Heiðrún Birna Rúnarsdóttir.12. september 2026
- Kvennakvöld HeilsuErlu (Heilsumoli 49)10. september 2026
- Sterkur september- heilsuáskorun (Heilsumoli 48)5. september 2026
- 126. Að treysta líkamanum aftur. (Saga um meiðsli, mótlæti, seiglu og sjálfsmynd). Sara Sigmundsdóttir30. ágúst 2026
- 125. Fordómar þrífast í þögninni. (Fíkn, jaðarsetning, meðvirkni, viðhorfsbreyting, meðvitund og von). Hlynur Kristinn Rúnarsson16. ágúst 2026






