16. Svefn og heilsa. Hvers vegna er svefn mikilvægur fyrir góða heilsu? Dr. Erla Björnsdóttir
Í þættinum ræðir Erla við Dr. Erlu Björnsdóttur sálfræðing og stofnanda Betri svefns um hvernig heilsa okkar hefur áhrif á svefn og hvað góður svefn getur haft gífurlega jákvæð áhrif á heilsu okkar.
Þær nöfnur ræða um kæfisvefn, svefnlyfjanotkun, svefnvenjur ungmenna, neföndun á nóttunni, svefnstigin fjögur og hvernig þau skipta öll máli í heildarmyndinni og ýmislegt fleira er tengist svefni og heilsu.
Dr. Erla hefur sérhæft sig í hugrænni atferlismeðferð við svefnleysi (HAM-S) og vinnur að rannsóknum á því sviði ásamt samstarfsmönnum í Evrópu og Bandaríkjunum. Hún hefur birt fjölda greina í erlendum ritrýndum tímaritum og einnig skrifað um svefn á innlendum vettvangi.
Dr. Erla hefur haldið fjölda fyrlestra og námskeiða og má þar helst nefna fyrirlestra og fræðslu um svefn og svefnvenjur fyrir fyrirtæki og hópa ásamt því að vera með hópnámskeið við svefnleysi. Erla er einnig höfundur bókarinnar Svefn sem kom út í mars 2017 og barnabókarinnar Svefnfiðrildin sem kom út árið 2020.
Nýjasta viðbót Erlu og fyrirtækis hennar er appið Isleep sem sækja má á heimasíðu þeirra.
Áhugasamir geta fylgt Betri Svefn á Instagram
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Fleiri þættir af Með lífið í lúkunum
- 128. Hvernig fjölgum við heilbrigðum æviárum? Kristján Þór Gunnarsson25. september 2026
- 127. Að virða ekki eigin mörk endar með kulnun. (Kærleikur, umhverfisvernd, hormónaraskandi efni og meðvitund). Heiðrún Birna Rúnarsdóttir.12. september 2026
- Kvennakvöld HeilsuErlu (Heilsumoli 49)10. september 2026
- Sterkur september- heilsuáskorun (Heilsumoli 48)5. september 2026
- 126. Að treysta líkamanum aftur. (Saga um meiðsli, mótlæti, seiglu og sjálfsmynd). Sara Sigmundsdóttir30. ágúst 2026
- 125. Fordómar þrífast í þögninni. (Fíkn, jaðarsetning, meðvirkni, viðhorfsbreyting, meðvitund og von). Hlynur Kristinn Rúnarsson16. ágúst 2026






