13. Heilsumissir, skömm, sorg og samkennd. Anna Sigurðardóttir
Í þættinum ræðir Erla við Önnu Sigurðardóttur, sálfræðing og stofnanda og eiganda Samkenndar Heilsuseturs um það hvernig hún missti heilsuna eftir röð áfalla og hvernig hún hefur hægt og rólega komist aftur til betri heilsu.
Þær stöllur ræða um hlutverk sálfræðinga, um skömm, sorg, samkennd, örmögnun, kulnun og heilsumissi. Anna útskýrir á skemmtilegan hátt afhverju það er svo erfitt að breyta venjum. Þær ræða einnig um hvað það er mikilvægt að umvefja sig fólki sem nærir mann og eiga fjölbreytt bjargráð til þess að bæta heilsu okkar.
Hjá Samkennd sinnir Anna greiningu og meðferð fullorðinna, sérhæfir sig í meðhöndlun á lágu sjálfsmati, kvíða, streitu, kulnun/örmögnun, sorg, áfallastreitu, samskiptavanda og almennri tilfinningalegri vanlíðan. Hún sinnir einnig handleiðslu sálfræðinga og fagaðila úr ýmsum starfsstéttum.
Áhugasamir geta fylgt Önnu á Instagram en þar deilir hún reglulega reynslu og ráðum sem allir gætu haft gagn og gaman að.
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Fleiri þættir af Með lífið í lúkunum
- 128. Hvernig fjölgum við heilbrigðum æviárum? Kristján Þór Gunnarsson25. september 2026
- 127. Að virða ekki eigin mörk endar með kulnun. (Kærleikur, umhverfisvernd, hormónaraskandi efni og meðvitund). Heiðrún Birna Rúnarsdóttir.12. september 2026
- Kvennakvöld HeilsuErlu (Heilsumoli 49)10. september 2026
- Sterkur september- heilsuáskorun (Heilsumoli 48)5. september 2026
- 126. Að treysta líkamanum aftur. (Saga um meiðsli, mótlæti, seiglu og sjálfsmynd). Sara Sigmundsdóttir30. ágúst 2026
- 125. Fordómar þrífast í þögninni. (Fíkn, jaðarsetning, meðvirkni, viðhorfsbreyting, meðvitund og von). Hlynur Kristinn Rúnarsson16. ágúst 2026






