Hugleiðingar um venjur - ertu fórnarlamb eigin væntinga? (Heilsumoli 47)
Hlaðvarpið er orðið 3 ára og Season 4 er mætt. TAKK öll fyrir að hlusta!
Í þessum heilsumola velti ég upp spurningunum: Af hverju er svona erfitt að breyta venjum? Hvernig get ég gert góða hegðun auðveldari og slæma hegðun erfiðari? Hvar á ég að byrja? Hvernig á ég að byrja? Hvernig verður eitthvað að venju?
Venjur móta líf okkar meira en við gerum okkur grein fyrir.
Við hugsum oft um stórar ákvarðanir sem það sem mótar lífið okkar. Hvar við búum. Hvað við lærum. Hvaða starf við veljum en í raun eru það litlu hlutirnir sem við gerum á hverjum degi sem hafa mest áhrif á hegðun okkar og líf.
Venja er einfaldlega hegðun sem við endurtökum svo oft að hún verður næstum sjálfvirk. Og þess vegna geta venjur annaðhvort orðið okkar sterkasti bandamaður eða versti óvinur.
Ég mæli með að lesa bókina Atomic Habits eftir James Clear. Hann bendir á að markmið segja okkur hvert við viljum fara, en það eru daglegu venjurnar sem ráða því hvort við komumst þangað.
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Fleiri þættir af Með lífið í lúkunum
- 128. Hvernig fjölgum við heilbrigðum æviárum? Kristján Þór Gunnarsson25. september 2026
- 127. Að virða ekki eigin mörk endar með kulnun. (Kærleikur, umhverfisvernd, hormónaraskandi efni og meðvitund). Heiðrún Birna Rúnarsdóttir.12. september 2026
- Kvennakvöld HeilsuErlu (Heilsumoli 49)10. september 2026
- Sterkur september- heilsuáskorun (Heilsumoli 48)5. september 2026
- 126. Að treysta líkamanum aftur. (Saga um meiðsli, mótlæti, seiglu og sjálfsmynd). Sara Sigmundsdóttir30. ágúst 2026
- 125. Fordómar þrífast í þögninni. (Fíkn, jaðarsetning, meðvirkni, viðhorfsbreyting, meðvitund og von). Hlynur Kristinn Rúnarsson16. ágúst 2026






