Myrka Ísland
Sigrún Elíasdóttir
Fyrir alla þá sem hafa gaman af hörmungum Íslandssögunnar, hvort sem það eru stórslys, morðmál, draugasögur, galdrar eða þjóðtrú.

Við eigum afmæli! Af því tilefni heiðrum við uppruna okkar dreifbýlistúttanna og einbeitum okkur að uppsveitum Borgarfjarðar. Í þessum hundraðasta Myrka Íslands þættinum förum við ekki-jarðfræðingarnir yfir æsispennandi hraunbreiðuna Hallmundarhraun við Langjökul. Sagnfræði, kolefnimælingar, hellagerð, ferðamannabransi og goðafræði í bland við fornbókmenntir, þjóðfræði og aðrar lygasögur þar sem Surtur, Þór og heilmargir glæpamenn koma við sögu. Áhorfendur eru með okkur í notalegu Safnahúsi Borgarfjarðar og það er líklegt að nærvera þeirra hafi dregið úr útúrdúrum í umræðum okkar.

Morðabelgur
Því miður vill það brenna við að morð eru framin á okkar litlu eyju. Mjög góðar skráningar og heimildir eru um þetta leiðinda athæfi hér. Við skoðum tvö afar ólík morðmál sem þó ekki eru svo langt frá okkur í tíma. Annað er frá 1891, þar sem durgurinn Jón fer á kostum. Hitt málið er frá 1929, þar sem hlífðargleraugu, ferðamaður og enn einn Jóninn leikur aðalhlutverk. Hversu marga Jóna þarf til að skapa eina smáþjóð? Og hvernig er hægt að refsa fyrir morð? Enn sýnum við snilli okkar í landafræði, líffræði, prósentureikningi og ekki síst í skilningi á lengdar og breiddargráðum. En því meiri hljóta spæjarahæfileikar okkar að vera. Allt sem þarf er jú hattur og vindill? Sigrún átti afmæli við gerð þessa þáttar.

Fannbarið fé
Eitt af svakalegustu óveðrum síðari tíma skall á landinu haustið 2012 sem hefur því miður ekki hlotið neitt sögulegt sérnafn ennþá. Norð Austurland varð sérstaklega illa úti í þessari tveggja daga stórhríð og mundu hvorki elstu menn, né veðurfræðingar þeirra aðra eins ofankomu að hausti. Svo óheppilega vildi til að fé var enn á fjalli og við tók þrotlaus vinna við að leita að og draga upp fé úr fönn. Við förum í gegnum veðurspár, rafmagnsleysi og hetjudáðir leitarfólks og öllum og óvörum, æsir Sigrún sig yfir landbúnaðarkerfinu. Við komumst að því að Anna er fimm ára barn sem eltist við eldingar og þurfti að lækna blóðsykursfall með malti í beinni útsendingu. Biðjumst velvirðingar á dálitlum hjóðtruflunum af ókunnum uppruna. Eflaust Jesús eitthvað að pönkast í okkur

Verbúðin Ísland
Anna mætir til leiks með rafsuðuhanska og hjálm til að verjast meintum músagangi í stúdíóinu. Fyrir utan allt annað sem við tölum um, var ætlunin að ræða aðallega um fiskveiðar Íslendinga fyrr á öldum. Verið viðbúin að komast að uppruna ýmissa málshátta og orðatiltækja og hlusta á útúrdúra um formæður og krabbamein. Upp kemst að alhæfingar Sigrúnar um þorpamyndun á Íslandi, eigi alls ekki við rök að styðjast, því á þeim eru endalausar undantekningar. Hún veit heldur ekki úr hvaða borg Hansakaupmennirnir komu, hvað fólk á að borða á páskalaugardaginn, hvernig hægt er að eiga Vestmannaeyjar, hvernig orðin "matan" og "bösl" eru fallbeygð og hvernig í ósköpunum var lyktin inni í tólf manna verbúð? Og enn á ný berst talið að kristinfræðinni og Jesús! Því hann elskar okkur enn? Það er reyndar hæpið á þessum tímapunkti.

Af vandamálum presta
Nú er komið að því að við veitumst að þjóðkirkjunni fyrr og síðar! Ekki í fyrsta skipti reynar, en Sigrún sló saman í samtíningsþátt af því skemmtilegasta frá svokölluðum 17. og 18. aldar prestastefnum. Prestastefnur voru, og eru eflaust enn, einhverskonar samkomur vígðra presta (einnig kallað LARP) þar sem lagt var á ráðin um hvernig ætti að taka á ýmsum málum, sérstaklega siðferðismálum. Kirkjusókn, messuvín, kirkjubekkir, Vottar Jehóva, vandræðaprestar, hjónaskilnaðir, lýsingar hjóna, feðranir barna og stafabil þjóðskrár er meðal þess sem tekið verður fyrir. Hinir hreintrúuðu munu eflaust biðja fyrir okkar syndugu sálum.

Sigrún er krumma aðdáandi mikill og getur ekki staðist mátið að tala um hann í óratíma. Þessi ódrepandi Batman norðursins virðist geta lifað af kjarnorkuvetur á loftinu einu saman. Hann hefur lifað í nábýli við okkur frá landnámi og af honum hafa sprottið ótal sögur og þjóðsagnaminni. Sumt er ágætlega skynsamlegt en annað virðist tóm vitleysa.

Úr snjóflóði
Saga dagsins gerist á fyrri hluta 20.aldar, í hinum stórmerkilegu Öræfum í Skaftafellssýslu og sögumaðurinn af merkum stofni. Eflaust náðum við að móðga alla sem þaðan eru ættaðir, minnst 12 ættliði aftur í tímann. Ungur maður fór eitt sinn í eftirleit við annan mann í leit að sauðum í Breiðamerkurfjalli. En lenti fljótlega í sannkölluðum hremmingum sem töfðu verulega fyrir verkefninu. Við fáum smá innsýn inn í hugrenningar mannsins í einveru sinni og hvernig fór fyrir honum.

Í Marvelheiminum/Íslandssögunni höfum við í ótal þáttum rekist á aðal stjörnu þáttarins; Sjálfan þúsundkallinn, Brynjólf Sveinsson, sem var biskup 1639-1674. Sigrún talar óvenju hratt og mikið, nánast þar til röddin gefur sig. Nær engan vegin að halda sig við kirkjulegt efnið. Umræður fara um víða velli með viðkomu í spuna, manntölum, salsadansi, þrískiptingu valds, myrkfælni, njósnastarfsemi, legorðsskuldum, námstækni, lengd meðgöngu og peningaprentun. Efnið er tragískara en þáttastýra áætlaði var við fyrstu sýn.

Bárður Snjáfellsás
Sigrún fær munnræpu og býður upp á fáránlega langa spin off Íslendingasögu, sem vill eiginlega frekar vera ævintýri. Það er skömm að því að búa svo nálægt Snæfellsnesi og þekkja ekki þessa sögu. Fjölskylduböndin eru á flækjustigi á pari við Bílastæðaverði Fóstbræðra og við sögu koma barnaperrar, vígahundar, galdramenn, gráðugir draugar, kristnisjúkir konungar og fjölmörg ný og skemmtileg orð í orðabankann. Konurnar spreyta sig á brotareikningi, sem hvorug er greinilega með meirapróf í.

Morð fyrir tvo
Sakamálaþáttur frá 18. öld! Hvað gerir stjórnandi ekki til að gleðja morðóða hlustendur? Lítt þekkt og nánast ónotað morð fannst við heimildauppgröft, þar sem grjóthella virðist helsti sökudólgurinn og sögupersóna, hvort sem hún endaði í tveimur bútum eða sé enn í heilu lagi. Í Biskupstungunum var allavega heilmikið slúðrað um það sem virðist hafa verið nútímalegt hjónaband, og ótal margar útgáfur af sama atburðinum.