Nærbuxurnar í Hamraborg

RÚV

BókmenntirBörnin

Sumarfríið er alveg að byrja og sumarhátíð skólans á næsta leiti. Vinirnir Úlla og Mási spá ekki mikið í það, þau hafa mikilvægari hnöppum að hneppa. Þau ætla að sinna mikilvægu og háleynilegu verkefni sem amma Úllu hefur lagt fyrir þau. Nærbuxurnar í Hamraborg er framhaldsleikrit í fimm hlutum fyrir börn eftir Viktoríu Blöndal. Persónur og leikendur: Úlla: Kría Valgerður Vignisdóttir Mási: Róbert Ómar Þorsteinsson Magnea: Guðný Þórarinsdóttir Sæbjörn: Kári Páll Thorlacius Teitur: Baldur Davíðsson Unglingur: Ragnar Eldur Jörundsson Amma: Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir Skarphéðinn: Hákon Jóhannesson Vaka Líf : Álfrún Örnólfsdóttir Afi: Þröstur Leó Gunnarsson Forsetinn: Hjörtur Jóhann Jónsson Olga: Þórdís Björk Þorfinnsdóttir Diddý: Maríanna Clara Lúthersdóttir Aron: Ágúst Örn Wigum Fréttamaður: Starkaður Pétursson Tónlist: Úlfur Úlfur Hljóðvinnsla: Hrafnkell Sigurðsson Leikstjóri: Viktoría Blöndal Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

5. þáttur

5. þáttur

6des2024

Þessi síðasti þáttur hefst í miðjum eltingaleik og allt í einu eru allir á leiðinni á Ægissíðu, meira að segja amman sem fer aldrei út úr húsi. Flækjan virðist óleysanleg. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

4. þáttur

4. þáttur

6des2024

Eins og fram kom í síðasta þætti gleymdist pakkinn góði í strætóskýlinu á Ægissíðunni. Nú eru góð ráð dýr. Það kemur svo í ljós að pakkinn er langt frá því að vera óhultur, hann kemst í hendurnar á manneskju sem reynist áður en yfir lýkur vera flagð undir fögru skinni. Amma sér í sjónaukanum sínum að áætlunin er öll úr skorðum og því þarf hún að taka erfiða ákvörðun. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

3. þáttur

3. þáttur

6des2024

Úlla og Mási eru komin í strætó þar sem þau hitta Aron sem segist vera strætóbílstjóri. Þau hafa ekki fyrr jafnað sig á sprengingunni sem heyrðist í lok síðasta þáttar þegar þau uppgötva að þau hafa misstigið sig, planið hennar ömmu er úr skorðum gengið og þau þurfa að bjarga málunum. Skarphéðinn kennari uppgötvar loksins að Úlla og Mási eru horfin á braut og það verður uppi fótur og fit í skólanum. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

2. þáttur

2. þáttur

6des2024

Ferðalagið með pakkann leiðir Úllu og Mása í strætóskýli á Ægissíðu þar sem þau hitta afar sérstaka konu. Amma er hins vegar heima eins og reyndar alltaf, hún fer nefnilega aldrei út. Hún er alltaf mikið í símanum og í þessum þætti fær hún dularfull símtöl úr ýmsum áttum. Mási og Úlla komast að lokum í strætó. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

1. þáttur

1. þáttur

6des2024

Skarphéðinn kennari er spenntur fyrir keppni í pylsuáti sem er hápunktur sumarhátíðar skólans en vinirnir Úlla og Mási láta sér fátt um finnast, þau eru með hugann við verkefnið sem amma Úllu hefur fengið þeim. Þau eiga að koma pakka til skila en vandamálið er að þau hafa ekki hugmynd um hvert ferðinni er heitið, þau vita ekki einu sinni hvað er í pakkanum. En þau halda nú samt af stað. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Þér gæti líka líkað...